Atos Medical PROVOX Vega Mode D'emploi page 99

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 13
2. Notkunarleiðbeiningar
2.1 Val á stærð talventilsins
Velja þarf nýjan ventil með rétt þvermál leggs og í réttri lengd
Tryggið að notaður sé Provox Vega talventill með rétt þvermál leggs og í réttri lengd.
Provox Vega er fáanlegur með mismunandi þvermál leggs og í nokkrum lengdum.
• Val á þvermáli leggs
Læknirinn þarf að ákveða þvermál ventilsins sem er viðeigandi fyrir sjúklinginn.
Ef valið þvermál er stærra en þvermál fyrri ventilsins, þarf að víkka opið með Provox
Dilator víkkara sem samsvarar þvermáli ventilsins sem koma á fyrir.
Ef ventill með minna þvermál leggs er settur í þarf að fylgjast með og tryggja að opið
dragist saman í viðeigandi þvermál.
• Val á lengd leggs
Til að velja rétta lengd má nota núverandi ventil sem mælitæki.
Ef of mikið bil (þ.e. 3 mm/~0,12 tommur, eða meira) er á milli barkakraga gamla
ventilsins og slímhúðarinnar skal nota styttri ventil. Ef ventillinn situr of þétt, skal
nota lengri ventil.
2.2 Undirbúningur
(myndir 3-6)
Staðsetning talventils
1.
Tryggðu að talventillinn sé rétt staðsettur á ísetningarpinnanum, vel festur og að
endi pinnans sé staðsettur í bláa hringnum á talventlinum (mynd 3).
Brjóttu barkakragann saman
2.
Tryggðu að ísetningarpinninn sé rétt staðsettur í samanbrotstækinu (pinninn á að
smella inn í samanbrotstækið).
3.
Þrýstu samanbrotstækinu saman með tveimur fingrum (mynd 4)
4.
Tengdu hleðsluslönguna á meðan samanbrotstækinu er haldið lokuðu og snúðu
hleðsluslöngunni þar til hún læsist á sínum stað (mynd 5).
(Á ekki við um ísetningu hylkis)
Hleðsla
5.
Ýttu ísetningarpinnanum áfram þar til talventillinn flúttar við sýnilega hringinn
á hleðsluslöngunni (mynd 6). (Á ekki við um ísetningu hylkis)
Gamli talventillinn fjarlægður
6.
Fjarlægðu núverandi (gamla) ventilinn úr TE-opinu með því að draga hann út
með ótenntri æðatöng. Að öðrum kosti, samkvæmt ákvörðun læknisins, má taka
í barkakraga ventilsins með töng og skera hann af. Afgangnum af ventlinum er síðan
ýtt inn í vélindað þannig að hann fari í gegnum meltingarveginn. Taka skal tillit til
sögu sjúklingsins um sjúkdóma í meltingarvegi áður en þessi aðferð er notuð.
Opið undirbúið (valfrjálst)
7.
Víkka má opið til að undirbúa það fyrir ísetningu talventilsins. Þetta er yfirleitt
ekki nauðsynlegt en getur auðveldað ísetningu hjá sjúklingum með hlykkjótt eða
þröngt op sem lokast auðveldlega.
2.3 Ísetning, framvirk skiptingaraðferð
Nota má fjórar aðferðir til að koma Provox Vega talventlinum fyrir með Provox Insertion
System. Val á aðferð fer eftir ákvörðun læknisins.
2.3.1
Ísetning á kerfi: Allt ísetningarkerfið er notað.
2.3.2
Ísetning á slöngu: Samanbrotstækið er fjarlægt fyrir ísetningu.
2.3.3
Ísetning á yfirskoti: Öllum talventlinum er komið fyrir í vélindanu og hann er
síðan dreginn í fyrirhugaða stöðu.
2.3.4
Ísetning á hylki: Talventillinn er settur í Provox Capsule hylki fyrir ísetningu.
2.3.1 Aðferð 1: Ísetning á kerfi
1.
Ísetning í TE-opið
Haltu Provox Insertion System með hleðsluslöngunni. Stingdu endanum
á hleðsluslöngunni inn í opið. Haltu áfram með varúð ef þú finnur fyrir viðnámi.
Ef þú finnur fyrir viðnámi, getur útvíkkun og/eða smurning auðveldað ísetninguna.
2.
Ísetning talventilsins
Haltu hleðsluslöngunni stöðugri með annarri hendinni og ýttu á ísetningarpinnann
með hinni hendinni þar til örvarnar á yfirborði fjarlæga gripsins flútta við neðri
brún samanbrotstækisins (mynd 7). Nú er vélindakragi talventilsins ósamanbrotinn
í vélindanu.
3.
Slepptu talventlinum
Dragðu hleðsluslönguna og samanbrotstækið saman beint út úr opinu. Talventillinn
verður eftir í opinu, ennþá vel festur við ísetningarpinnann.
4.
Ferlinu lokið
Eftir ísetningu þarf að ljúka ferlinu eins og lýst er í kafla 2.5 hér fyrir neðan.
2.3.2 Aðferð 2: Ísetning slöngu
Til að auka sýnileika má fjarlægja samanbrotstækið þegar ventlinum hefur verið ýtt
inn í hleðsluslönguna.
Athugið: Mikilvægt er að nota Provox Insertion System alltaf með meðfylgjandi
samanbrotstæki þegar ventlinum er komið fyrir, til að tryggja rétt brot á vélindakraganum.
1.
Samanbrotstækið fjarlægt
Fjarlægðu samanbrotstækið með því að opna og aftengja það frá hleðsluslöngunni
(mynd 8).
99

Publicité

Table des Matières
loading

Produits Connexes pour Atos Medical PROVOX Vega

Table des Matières