Télécharger Imprimer la page

Outdoorchef LUGANO 570 G EVO Mode D'emploi page 200

Masquer les pouces Voir aussi pour LUGANO 570 G EVO:

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 44
NOTKUN OUTDOOR CHEF CLEANER
MIKILVÆGT: Ekki má vera kveikt á grillinu á meðan það er þrifið með OUTDOORCHEF CHEF-CLEANER.
Notið hanska og hlífðargleraugu. Úðið á grillið eða fylgihlutina á meðan þau eru enn heit og látið vinna í 10 mínútur, þar til froðan er horfin.
Þrífið því næst, eftir þörfum, með hentugum grillbursta eða nælonsvampi. Skolið síðan vandlega með vatni og þerrið.
VARÚÐ: Ekki má nota OUTDOORCHEF CHEF CLEANER á pólýhúðaða fleti.
VIÐHALD Á LUGANO 570 G EVO STEAKHOUSE BURNER
Skordýr geta stíflað brennarann. Við það geta afköst grillsins minnkað auk þess sem hætta er á að eldur komist í gaslögnina. Skoða verður
brennarann og hreinsa hann reglulega með eftirfarandi hætti:
1. Takið fyrst steypujárnsgrindurnar og logahlífina úr LUGANO 570 G EVO.
2. a) Fjarlægið síðan öryggispinnana úr brennarafestingunni.
b) Takið brennarana síðan upp úr grillinu.
3. Hreinsið úr brennaranum með mjóum flöskubursta eða vír.
4. Að þrifunum loknum eru íhlutirnir settir aftur í grillið í öfugri röð og teknir aftur í notkun samkvæmt leiðbeiningunum í kaflanum "KVEIKT UPP
Í STEAKHOUSE BURNER".
MIKILVÆGT: Ef hreinsiefni eru notuð við þrifin verður að láta grillið þorna vel á eftir. Til að flýta fyrir þurrkun má kveikja á grillinu og láta það
ganga í nokkrar mínútur með lokið uppi á stillingunni
VIÐHALD
Reglubundið viðhald grillsins tryggir rétta virkni.
Athugið alla hluta sem leiða gas að minnsta kosti tvisvar á ári og í hvert sinn eftir langan tíma í geymslu. Köngulær og skordýr geta valdið
stíflum sem verður að lagfæra fyrir notkun.
Ef grillið er dregið oft yfir ójöfnur skal kanna af og til hvort allar skrúfur eru fastar.
Ef grillið er ekki notað í lengri tíma skal framkvæma LEKAPRÓFUN áður en það er tekið í notkun á ný. Ef spurningar vakna skal snúa sér
til söluaðila gassins eða sölustaðar.
Til að forðast skemmdir vegna tæringar skal smyrja alla málmhluta með olíu áður en grillið er sett í geymslu í lengri tíma.
Eftir langan geymslutíma og a.m.k. einu sinni á grilltímabilinu skal athuga gasslönguna með tilliti til sprungna, brota og annarra skemmda.
Skiptið strax um skemmda gasslöngu eins og lýst er í kaflanum ÖRYGGISUPPLÝSINGAR.
Berið viðarolíu á alla viðarhluta einu sinni á ári – það vinnur gegn sprungumyndun.
Þegar OUTDOORCHEF-grillið hefur kólnað skal setja hentuga yfirbreiðslu yfir það til að verja það fyrir umhverfisáhrifum.
Taka skal yfirbreiðsluna af eftir rigningu til að koma í veg fyrir uppsöfnun raka. Yfirbreiðslur fást hjá söluaðilum.
BILANIR LAGFÆRÐAR
Það kviknar ekki á brennaranum:
Athugið hvort opið er fyrir gasstreymið á kútnum.
Gangið úr skugga um að nóg gas sé á kútnum.
Athugið hvort neistar frá rafskautinu hlaupa yfir í brennarann.
VARÚÐ: Þegar þetta er athugað verður að vera skrúfað fyrir gasið á kútnum!
Enginn neisti:
Gangið úr skugga um að rafhlaðan hafi verið sett rétt í (á grillum með rafkveikju).
Fjarlægðin milli brennara og rafskauts má ekki vera meiri en 5–8 mm.
Athugið hvort snúrur í rafkveikingu og rafskauti eru vel festar.
Setjið tvær nýjar rafhlöður (af gerðinni AAA, LR03, 1,5 Volt) í rafkveikjuna.
.
200
OUTDOORCHEF.COM

Publicité

loading

Produits Connexes pour Outdoorchef LUGANO 570 G EVO