3M DBI-SALA Mobi-Lok 2200094 Manuel D'instruction Pour L'utilisateur page 125

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 87
1.0
VÖRUNOTKUN
1.1
TILGANGUR: LofttæmisfestingFestitengingar eru hannaðar til að veita festipunkta fyrir fallstöðvunarkerfi
fallvarnarkerfi
kerfi: Festing, vinnustaða, flutningur starfsmanna, björgun o.s.frv.
2
;
Aðeins fallvörn: Þessi Lofttæmisfesting er til tengingar við fallvarnarbúnað. Ekki má tengja lyftibúnað við þennan
Lofttæmisfesting.
1.2
STAÐLAR: Þessi Lofttæmisfesting er í samræmi við innlenda og svæðisbundna staðla eða staðla sem finna má á forsíðu
þessara leiðbeininga. Ef þessi vara er endurseld utan upprunalandsins skal endursöluaðilinn veita þessar leiðbeiningar á
tungumáli landsins þar sem varan verður notuð.
1.3
EFTIRLIT: Uppsetning þessa búnaðar verður að fara fram undir eftirliti vottaðs aðila
fram undir eftirliti hæfs aðila
1.4
ÞJÁLFUN: Búnaðurinn þarf að vera settur upp og notaður af aðilum sem hafa hlotið þjálfun í réttri notkun hans. Þessa
handbók skal nota sem hluta af þjálfun starfsmanna í samræmi við kröfur ANSI, OSHA, CE eða annarra svæðisbundinna
reglugerða. Það er á ábyrgð notenda og uppsetningaraðila þessa búnaðar að þeir hafi náð góðum skilningi á leiðbeiningum
þessum og að þeir hafi hlotið þjálfun í réttri umhirðu og notkun þessa búnaðar. Einnig er nauðsynlegt að þeir skilji eiginleika
búnaðarins við notkun, takmarkanir hans, og hvaða afleiðingar það getur haft að nota þennan búnað á rangan hátt.
1.5
BJÖRGUNARÁÆTLUN: Vinnuveitandi verður að hafa sett upp björgunaráætlun við notkun þessa búnaðar og samtengdra
undirkerfa og verður að geta hrint henni í framkvæmd og miðlað henni til notenda, aðila með leyfi
Mælt er með að þjálfað björgunarteymi sé á staðnum. Teymismeðlimir ættu að fá búnað og tækni til að framkvæma
farsæla björgun. Þjálfun ætti að fara fram með reglubundnum hætti til að tryggja skilvirkni við björgun.
1.6
EFTIRLITSTÍÐNI: Notandinn skal skoða Lofttæmisfesting-búnaðinn fyrir hverja notkun auk þess sem til þess hæfur aðili
annar en notandinn skal skoða hana með mest eins árs millibili.
Niðurstöður eftirlits hvers hæfs aðila skal skrá í eintök af „Eftirlits- og viðhaldsskrá". Einnig skal tæknimaður vottaður af 3M
Fall Protection skoða Lofttæmisfesting árlega, eða samkvæmt skriflegu samkomulagi við 3M Fall Protection, til að endurvotta
búnaðinn.
1.7
EF FALL HEFUR ÁTT SÉR STAÐ: Ef Lofttæmisfesting-búnaðurinn er notaður til að stöðva fall, skal taka búnaðinn
samstundis úr notkun, merkja hann skýrt og greinilega með „MÁ EKKI NOTA" og síðan annað hvort farga honum eða
senda hann til 3M til viðgerðar eða til að fá nýjan búnað.
2.0
KERFISKRÖFUR
2.1
FESTINGAR: Festikröfur eru mismunandi eftir notkun fallvarnar. Burðarvirkið sem Lofttæmisfesting-búnaðurinn er settur
á eða festur við verður að uppfylla festikröfurnar sem tilgreindar eru í töflu 1.
2.2
PERSÓNULEG FALLSTÖÐVUNARKERFI: Mynd 1 Á mynd 1 má sjá notkun Lofttæmisfesting-búnaðarins. Persónuleg
fallstöðvunarkerfi (PFAS) sem notuð eru með kerfinu verða að uppfylla viðeigandi fallvarnarstaðla, reglur og kröfur.
Upplýsingar um takmarkanir á frjálsu falli má finna í leiðbeiningum sem fylgja dragreipinu eða sjálfinndraganlegum
búnaði (SRD-búnaði). Við notkun persónulegra fallstöðvunarkerfa verður að notast við fallvarnarbelti og takmarka
hámarksstöðvunarkraft við eftirfarandi gildi:
PFAS með dragreipi sem dregur úr
höggi
Persónulegt fallstöðvunarkerfi með
sjálfinndraganlegum búnaði (SRD-
búnaði)
2.3
FALLLEIÐ OG LÆSINGARHRAÐI SRD-BÚNAÐAR: Greið leið er nauðsynleg til að tryggja jákvæða læsingu á SRD.
Forðast skal aðstæður sem leyfa ekki greiða og óhindraða fallleið. Ef unnið er í lokuðu eða þröngu rými getur það orðið til
þess að líkaminn nái ekki fullnægjandi hraða sem veldur því að SRD læsist ef fall á sér stað. Ef unnið er með efni sem flutt
er hægt til, til dæmis sandur eða korn, kann ekki nægur hraði að myndast til að valda því að SRD læsist.
2.4
HÆTTA: Notkun þessa búnaðar á svæðum með umhverfishættu getur krafist viðbótarráðstafana til að koma í veg fyrir
meiðsli á notendum eða skemmdir á búnaði. Hættur geta meðal annars verið: hiti, íðefni, ætandi umhverfi, háspennulínur,
sprengifimar eða eitraðar lofttegundir, vélbúnaður á hreyfingu, skarpar brúnir eða efni fyrir ofan sem getur fallið á eða
komist í snertingu við notandann eða persónulega fallstöðvunarkerfið.
1  Fallstöðvunarkerfi:
Úrval fallvarnarbúnaðar sem settur er upp til að stöðva frjálst fall.
2  Fallvarnarkerfi:
Úrval fallvarnarbúnaðar sem settur er upp til að koma í veg fyrir að þyngdarpunktur einstaklings komist í fallhættu.
3 Vottaður aðili:
Aðili með viðurkennda gráðu eða faglegt vottorð og ítarlega reynslu í fallvörnum. Þessi aðili verður að geta hannað, greint, metið og vera með
sérhæfingu í fallvörnum.
4 Hæfur aðili:
Aðili sem hefur getu til að bera kennsl á núverandi eða fyrirsjáanlega hættu í umhverfinu, eða bera kennsl á vinnuaðstæður sem eru óheilbrigðar,
hættulegar eða ógna öryggi starfsmanna, og sem hefur heimild til að grípa til viðeigandi ráðstafana til að sneiða hjá hættunni.
5  Aðili með leyfi:
Að því er varðar Z359-staðlana er átt við aðila sem skipaður er af vinnuveitanda til að framkvæma verk á vinnustað þar sem viðkomandi getur
verið í fallhættu.
6 Björgunarmaður:
Aðili eða aðilar aðrir en sá sem skal bjarga, sem framkvæma björgun með notkun björgunarkerfis.
7 Eftirlitstíðni:
Erfiðar vinnuaðstæður (óblítt umhverfi, langvarandi notkun, o.s.frv.) geta haft í för með sér að hæfur aðili þurfi að framkvæma tíðara eftirlit.
.
4
1.350 pund (6 kN)
1.350 pund (6 kN)
Eftirlitsverkferlum er lýst í „Eftirlits- og viðhaldsskrá".
7
ANSI/OSHA
125
eða
1
Notkun þessa búnaðar skal fara
3
, og björgunarmanna
5
CE
1.350 pund (6 kN)
1.350 pund (6 kN)
.
6

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières