Outdoorchef DUALCHEF 315 G Mode D'emploi page 162

Masquer les pouces Voir aussi pour DUALCHEF 315 G:
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 36
4. Undanskilið ábyrgð
Ábyrgðin gildir ekki í eftirfarandi tilvikum:
Eðlilegt slit við fyrirhugaða notkun, einkum á almennum slithlutum eins og hitamæli, kveikju og rafhlöðu, rafskauti, kveikitaug, gasslöngu,
gasþrýstijafnara, halógenperu, fituplötu og fitubakka.
Skemmdir í emaleringu á notuðum vörum ef ekki er hægt að sanna að skemmdin var til staðar fyrir fyrstu notkun.
Bilun og/eða skemmdir vegna óviðeigandi eða rangrar notkunar, einkum vegna þess að ekki var farið eftir notkunar- og öryggisleiðbeiningum
eða viðhaldsleiðbeiningum (t.d. notkun á útigrillum innandyra, skemmdir vegna rangrar samsetningar, rangra þrifa á gljábrenndum yfirborðsfleti
trektarinnar eða grillgrindinni, vegna þess að lekaprófun var ekki framkvæmd eins og ráðlagt er í notkunarleiðbeiningunum, vegna notkunar á
skaðlegum íðefnum, vegna annarrar notkunar en fyrirhugaðrar o.s.frv.).
Bilun og/eða skemmdir sem stafa af inngripi eða viðgerðum framkvæmdum af aðilum sem OC hefur ekki viðurkennt.
Bilun og/eða skemmdir vegna veðurs (t.d. haglél eða eldingar).
Bilun og/eða skemmdir sem valdið er af ásetningi eða gáleysi, svo framarlega sem OC ber ekki ábyrgð á þeim.
Bilun og/eða skemmdir sem verða við flutning til kaupandans, svo framarlega sem ábyrgðarveitandinn ber ekki ábyrgð á þeim.
Bilun og/eða skemmdir af völdum óviðráðanlegra orsaka.
Bilun og/eða slitskemmdir vegna notkunar í atvinnuskyni (t.d. í hótel- eða veitingarekstri).
5. Úrvinnsla ábyrgðar
Ef um ábyrgðartilvik er að ræða skaltu hafa samband eins fljótt og auðið er við okkur eða viðurkenndan söluaðila (lista yfir söluaðila er að
finna á www.outdoorchef.com) og tilgreina eftir því sem hægt er vöruna/hluta vörunnar, sölukvittun, raðnúmer og vörunúmer (koma bæði
fram á upplýsingalímmiða á grillinu; sjá fyrsta kaflann í notkunarleiðbeiningunum), ásamt heimilisfangi þínu. Þú mátt gjarnan láta mynd fylgja
með lýsingunni á gallanum. Skilaðu vörunni til söluaðilans eða okkar svo við getum prófað vöruna og kannað hvort ábyrgðin gildi. Í réttmætum
ábyrgðartilvikum munum við endurgreiða nauðsynlegan flutnings- og sendingarkostnað, annars munum við senda vöruna til baka á þinn kostnað.
Eftirfarandi fyrirtæki er fulltrúi fyrir skráða vörumerkið OUTDOORCHEF
Outdoorchef AG | Eggbühlstrasse 28 | Postfach | 8050 Zürich-Schweiz | www.outdoorchef.com
*
Listi yfir söluaðila er á vefsíðunni okkar á OUTDOORCHEF.COM
**
Raðnúmer og vörunúmer eru á upplýsingalímmiðanum á grillinu
(sjá fyrsta kafla í þessum NOTKUNARLEIÐBEININGUM).
162
OUTDOORCHEF.COM

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières