3M 6500QL Serie Mode D'emploi page 34

Masquer les pouces Voir aussi pour 6500QL Serie:
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 7
i Lesið þessar leiðbeiningar samhliða viðeigandi leiðbeiningabæklingi með 3M™ síu og sérleiðbeiningum með 3M™ andlitshlíf þar sem finna
má upplýsingar um:
• samþykktar samsetningar 3M™ sía
• aukahluti
• varahluti
KERFISLÝSING
Þessar vörur uppfylla kröfur EN 140:1998 um margnota hálfgrímur og nota skal þær samhliða viðurkenndum 3M síum (sjá bækling) til að mynda
síubúnað sem verndar öndunarfæri. Slíkur búnaður er hannaður til að fjarlægja hættulegar gastegundir, gufu og/eða agnir úr andrúmsloftinu.
^ VIÐVARANIR OG TAKMARKANIR
^ Veitið viðvörunaryfirlýsingum sérstaka athygli þar sem í þær er vísað.
^ VIÐVARANIR
Gangið ávallt úr skugga um að varan í heild sinni:
– henti notkun hverju sinni,
– passi vel,
– sé notuð allan váhrifatímann, og
– sé endurnýjuð eftir þörfum.
• Rétt val, þjálfun, notkun og viðeigandi viðhald eru allt nauðsynlegir þættir til að varan geti varið notandann fyrir tilteknum aðskotaefnum í
lofti. Ef öllum notkunarleiðbeiningum þessarar öndunarhlífar er ekki fylgt og/eða ef hún er ekki höfð rétt á í heild sinni allan váhrifatímann
getur það haft alvarleg áhrif á heilsufar notandans og leitt til alvarlegra eða lífshættulegra sjúkdóma eða varanlegrar fötlunar.
• Til að varan henti og sé notuð rétt skal fylgja staðbundnum reglugerðum og fara eftir öllum upplýsingum sem með henni fylgja. Frekari upplýsingar er
hægt að nálgast hjá öryggissérfræðingi/fulltrúa 3M (upplýsingar um tengiliði á staðnum).
• Notið aðeins með 3M™ síum og varahlutum og fylgihlutum sem talin eru upp og innan þeirra notkunarskilyrða sem fram koma í tæknilýsingunni.
• Ekki má breyta þessari vöru. Notið aðeins upprunalega varahluti frá 3M við viðgerðir.
• Viðhald, þjónusta og viðgerðir ættu að vera í höndum sérþjálfaðs starfsfólks.
• Almennt eftirlit þarf að framkvæma fyrir notkun eða mánaðarlega ef tækið er ekki í stöðugri notkun. Sjá ítarlegri lýsingar í leiðbeiningum um skoðun.
• Notið ekki í andrúmslofti þar sem súrefnisinnihald er minna en 19,5%. (Skilgreining frá 3M. Í hverju landi fyrir sig kunna að vera í gildi aðrar takmarkanir
hvað varðar súrefnisskort. Leitið ráða ef vafi leikur á málum).
• Notið þessar vörur ekki í súrefni eða súrefnisauðguðu andrúmslofti.
• Notið ekki sem öndunarhlíf gegn mengunarvöldum í lofti eða styrkleika sem lélegar eða litlar viðvaranir eru til um, gegn óþekktum mengunarvöldum
eða þeim sem eru umsvifalaust hættulegir lífi eða heilsu (IDLH), né gegn mengunarvöldum í lofti eða styrkleika sem myndar háan hita í snertingu við síur
með íðefnum.
• Veljið og notið viðeigandi vörn nálægt neistum og/eða logum.
• Hafið samband við 3M ef fyrirhuguð er notkun á sprengihættustað.
^ Notið ekki yfir skegg eða annað andlitshár sem gæti hamlað snertingu á milli andlits og vörunnar og þannig komið í veg fyrir góða
þéttingu.
• Yfirgefið mengaða svæðið umsvifalaust ef:
a) erfitt verður að anda eða vart verður við aukið öndunarviðnámn,
b) vart verður við svima eða önnur óþægindi,
c) vart verður við lykt eða bragð af aðskotaefnum eða ertingu.
d) loftstreymi í andlitshlífina minnkar eða hættir alveg,
e) einhver hluti kerfisins skemmist,
• Innlendar reglugerðir kunna að kveða á um tilteknar takmarkanir hvað varðar notkun sía, eftir síuflokkun og þeirri andlitshlíf sem notuð er. Notkun hvers
kyns samsetninga á 3M™ andlitshlífum / síum ætti að vera í samræmi við gildandi heilsu– og öryggisverndarstaðla, viðmiðunartöflur fyrir öndun og í
samræmi við tilmæli frá heilbrigðisfulltrúa vinnustaðarins.
• Efni sem geta komist í snertingu við húð notenda munu ekki valda ofnæmisviðbrögðum nema hjá minnihluta notenda.
• Þessar vörur innihalda ekki íhluti sem gerðir eru úr náttúrulegu gúmmílatexi.
UNDIRBÚNINGUR FYRIR NOTKUN
UMBÚÐIR FJARLÆGÐAR
Athugið pakkningar með tilliti til skemmda vegna flutninga og gangið úr skugga um að allir íhlutir séu til staðar.
Gangið úr skugga um að búnaðurinn sé heill, óskaddaður og settur saman með réttum hætti.
Merkið „QL" á krækjunni auðkennir þessa andlitshlíf sem 3M™ hálfgrímu í vörulínunni 6500QL.
Skoðun
Mælt er með eftirfarandi verklagi fyrir notkun:
1. Gáið að sprungum, rifum og óhreinindum á andlitshlíf. Gangið úr skugga um að andlitshlífin, einkum sá hluti sem þéttist við andlitið, sé óspilltur. Efnið á
að vera þjált, ekki stíft.
2. Gáið að sprungum og rifum í innöndunarlokum. Lyftið lokum upp og gáið að óhreinindum eða sprungum í lokasæti.
3. Gangið úr skugga um að höfuðólar séu heilar og teygist vel.
4. Gáið að sprungum eða sliti í öllum plasthlutum.
5. Fjarlægið hlífina yfir útöndunarloka og skoðið útöndunarlokann og lokasætið með tilliti til óhreininda, skemmda, sprungna eða rifna. Setjið hlífina yfir
útöndunarloka aftur á sinn stað.
LEIÐBEININGAR UM SAMSETNINGU
Sjá viðeigandi notendaleiðbeiningar (t.d. leiðbeiningarbæklingur með 3M síu)
33

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières