Xylem LOWARA 1VM02P Manuel D'installation, D'utilisation Et D'entretien page 73

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 14
• Köldu vatni
• Volgu vatni
Notkunarsvið
Dælan er gerð fyrir:
• Vatnsdreifikerfi fyrir almenning og iðnað.
• Vökvun (t.d. akuryrkja og íþróttamannvirki)
Röng notkun
HÆTTA:
Notið ekki þessa dælu til að sjá um eld-
fima og sprengifima vökva.
AÐVÖRUN:
Röng notkun dælunnar getur skapað
hættulegar aðstæður og valdið líkam-
stjóni og eignaskemmdum.
ATHUGA:
Notið ekki þessa dælu til að dæla vökva með slíp-
andi, föstum eða trefjaríkum efnum, eitruðum eða
tærandi vökvum, drykkjarvörum öðrum en vatni eða
vökvum sem ekki hæfa smíðaefni dælunnar.
Röng notkun vörunnar leiðir til að ábyrgðin fellur úr
gildi.
3.2 Notkunarmörk
Varðandi hámarks vinnuþrýsting og vökvahitabil, sjá
Tafla 3
á blaðsíðu 186
3.3 Upplýsingaplata
Merkiplatan er merkimiði á dælunni. Á merkiplötunni
eru helstu tæknilegu upplýsingar. Varðandi frekari
upplýsingar, sjá
Mynd 1
á blaðsíðu 183.
WRAS merkimiði - Uppsetningarákvæði og -
athugasemdir (eingöngu fyrir Bretlandsmarkað)
WRAS vottun á dæluna merkir að hún er samþykkt
af Water Regulation Advisory Scheme [Leiðbeinandi
kerfi um vatnsstjórnun]. Þessi dæla er ætluð fyrir
drykkjarvatn fyrir fólk. Varðandi frekari upplýsingar,
sjá IRN R001 og IRN R415 í skránni yfir vatnsfittings
og efni í WRAS (www.wras.co.uk).
IMQ eða önnur merki (aðeins fyrir raftengda
dælu)
Rafmagnsörygggisvottun á vörur með merki um
slíkt, á aðeins við um rafknúna dælu, ef ekki er ann-
að tekið fram.
4 Uppsetning
Varúðarráðstafanir
AÐVÖRUN:
• Fylgið slysavarnarreglum sem eru í
gildi.
• Notið viðeigandi búnað og varnir.
• Takið ávallt mið af lögum, reglugerð-
um og stöðlum á hverjum stað varð-
andi val á uppsetningarstað ásamt
pípulögnum og rafmagnstengingum.
4.1 Kröfur um aðstöðu
4.1.1 Dælustaðsetning
is - Þýðing af upprunalega eintakinu
HÆTTA:
Ekki skal nota þessa einingu í eldfimu/
sprengifimu umhverfi eða þar sem tær-
andi gastegundir eða duft er fyrir hendi.
Leiðbeiningar
Fylgið eftirfarandi leiðbeiningum varðandi staðsetn-
ingu vörunnar:
• Tryggið að ekkert hindri eðlilegt streymi kæliloft-
sins sem vélarviftan dregur.
• Gangið úr skugga um að uppsetningarsvæðið sé
varið fyrir vökvalekum og flóðum.
• Ef hægt er skal koma dælunni fyrir svolítið yfir
gólfhæð.
• Umhverfishita skal vera á milli -30°C (-22°F) og
+50°C (+122°F) nema annað sé tekið fram á
merkiplötu.
• Rakastig andrúmslofts í kring skal vera undir
50% við +40°C (+104°F).
Uppsetning ofan við vökvayfirborð (soglyftihæð)
Fræðileg soglyftihæð allra dæla er 10,33 m. Í reynd
hefur eftirfarandi áhrif á soggetu dælunnar:
• Hitastigi vökvans
• Hæð yfir sjávarmáli (í opnu kerfi)
• Kerfisþrýstingi (í lokuðu kerfi)
• Mótstöðu í pípulögnum
• Innri mótstaða dælunnar sjálfrar
• Hæðarmismun
Varðandi frekari upplýsingar um afköst, sjá .
ATHUGA:
Ekki skal fara fram úr sogafköstum dælunnar því að
það getur valdið straumtæringu og skemmt dæluna.
4.1.2 Pípulagnakröfur
Varúðarráðstafanir
VARÚÐ:
• Notið pípur sem ráða við hámark-
svinnuþrýsting dælunnar. Ef það er
ekki gert getur það valdið því að kerf-
ið rofni með hættu á meiðslum.
• Tryggið að allar tengingar séu gerðar
af viðurkenndum tæknimönnum í
uppsetningu og séu í samræmi við
gildandi reglur.
Gaumlisti fyrir pípulagnir
• Stærð röra og loka verður að vera rétt.
• Röralagnir skulu hvorki flytja nokkurn þunga né
snúningsátak að dæluflöngsum.
Varðandi teikningar sem sýna pípulagnakröfur, sjá
Mynd 5
á blaðsíðu 188.
4.2 Raftæknilegar kröfur
• Reglur sem eru í gildi á staðnum eru æðri þess-
um sérkröfum. Varðandi slökkvikerfi (brunahana
og/eða úðakerfi), skal fara eftir gildandi reglum.
Gaumlisti fyrir raftengingu
Athugið hvort eftirfarandi kröfur eru uppfylltar:
• Rafleiðarar eru varðir fyrir háum hita, titringi og
hnjaski.
• Á rafveitulögninni er:
73

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières