Outdoorchef AROSA 570 G Manuel page 79

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 19
EINSTAKT TREKTARKERFI
Hvort sem ætlunin er að grilla, elda eða baka sér trektarkerfið frá OUTDOORCHEF í venjulegri stöðu til þess að hitinn dreifist jafnt innan
kúlunnar og kemur í veg fyrir að fita brenni, þar sem brennararnir eru fullkomlega varðir.
Ekki kviknar í fitudropum sem leka af matnum því þeir renna niður eftir postulínsemaleruðu trektinni og ofan í safnbakkann undir kúlunni.
Þú getur einbeitt þér að gestgjafahlutverkinu á meðan kræsingarnar grillast fullkomlega, án þess að það þurfi að snúa þeim.
Kjöt, fiskur, grænmeti og fleira verður einstaklega safaríkt, meyrt og stökkt. Þar sem hluti fitunnar og kjötsafans sem rennur í trektina gufar
upp fær maturinn líka hinn ómissandi grillkeim.
Við allt að 360 gráðu hita fá pítsur og brauð frábæra grillbökun sem jafnast á við gæði úr steinofnum. Þegar litli brennarinn er notaður er
maturinn hæggrillaður við lágt hitastig í kringum 80 gráður − sem eru kjörskilyrði til þess að stór, heil kjötstykki á borð við roast beef, tomahawk
eða rib-eye verði meyr og safarík.
Með því að snúa trektinni í eldfjallastöðuna er hægt að elda með mjög háum hita neðan frá sem beinist að ákveðnum stað (allt að 500 gráður).
Þessi staða hentar fullkomlega fyrir OUTDOORCHEF-fylgihluti eins og wok-grillpönnuna, Aroma-pönnuna eða steypujárnsplötuna.
Þar sem trektin heldur kúlugasgrillinu hreinu að innan er leikur einn að þrífa það.
ÁBENDING: Við mælum með því að hita grillið í hæstu stillingu í 10 mínútur til að þrífa trektina (venjuleg staða). Að því loknu er einfaldlega hægt
að bursta úr trektinni með messingbursta. Við mælum með því að nota OUTDOORCHEF-trektarburstann.
Frekari upplýsingar um fylgihluti frá okkur: WWW.OUTDOORCHEF.COM
VENJULEG STAÐA
Venjuleg staða trektarinnar hentar best fyrir flestar grillaðferðir og tryggir að hitinn dreifist jafnt
og vel um kúluna. Maturinn grillast þá jafnt á öllum hliðum án þess að það þurfi að snúa honum.
Kjöt, fiskur, grænmeti og fleira verður einstaklega safaríkt, meyrt og stökkt við þessa meðferð.
Þannig er venjuleg staða tilvalin fyrir hvers kyns kjöt, til að grilla fisk á lægri hita, gratínrétti,
stökkt grænmeti og einnig til að baka pítsur og brauð.
ELDFJALLSSTAÐAN
Með því að snúa trektinni í eldfjallastöðuna er hægt að elda með mjög háum hita neðan frá sem
beinist að ákveðnum stað. Þessi staða hentar fullkomlega fyrir OUTDOORCHEF-fylgihluti eins
og wok-grillpönnuna, Aroma-pönnuna eða steypujárnsplötuna.
Hún hentar því mjög vel fyrir snöggsteikingu eins og á túnfisksteikum, hörpuskeljum
eða wok-grænmeti.
OUTDOORCHEF.COM
156
NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR KÚLUGASGRILL
1. Færið trektina í stöðuna sem á að nota (venjulegu stöðuna eða eldfjallsstöðuna).
VARÚÐ: Notið eingöngu hitaþolna hanska til að breyta stöðu trektarinnar meðan grillið er í notkun.
ATHUGIÐ: Þegar grillað er og eldað í eldfjallsstöðunni á stillingunni
hægt að hafa lokið á þegar grillað er í eldfjallsstöðunni.
2. Veljið viðeigandi aukabúnað ef þörf krefur.
3. Hafið grillið lokað og forhitið það í u.þ.b. 10–15 mínútur á stillingu
4. Setjið matinn á grillgrindina og stillið hitastigið eftir þörfum á bilinu
5. Stillið gasstillihnappinn alltaf á
eftir notkun. Skrúfið síðan fyrir gasið á gaskútnum. Skrúfa verður fyrir gaskútinn jafnvel þótt hann sé tómur.
6. VARÚÐ: Hætta er á að brenna sig á heitri feiti í feitibakkanum. Látið feitina kólna alveg áður en feitibakkinn er fjarlægður.
7. Látið grillið kólna alveg áður en það er fært úr stað eða þrifið.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR HLIÐARHELLU
(Á AÐEINS VIÐ FYRIR GERÐIR MEÐ HLIÐARHELLU)
1. Áður en hliðarhellan er tekin í notkun skal setja matreiðslu-/pönnustykkið á.
2. Veljið viðeigandi fylgihluti eða pönnu og setjið á matreiðslu-/pönnustykkið. Við notkun OUTDOORCHEF BBQ WOK (fáanlegt sem
fylgihlutur) skal nota meðfylgjandi WOK-festingu.
3. Stillið hitastigið eftir þörfum á bilinu
.
4. Þegar búið er að hita fylgihlutina eða pönnuna í stutta stund skal setja matinn á og matreiða hann.
5. Stillið gasstillihnappinn alltaf á
eftir notkun. Skrúfið síðan fyrir gasið á gaskútnum. Skrúfa verður fyrir gaskútinn jafnvel þótt hann sé tómur.
6. Látið grillið kólna alveg áður en það er fært úr stað eða þrifið.
7.
Ekki nota eldunaráhöld eða <160 mm og >270 mm á hliðareldasvæðinu.
MATREIÐSLU-/PÖNNUSTYKKI
NOTKUN
Ef koma þarf við matreiðslu-/pönnustykkið á meðan verið er að grilla verður að klæðast grillhönskum. Ekki má setja heitt matreiðslu-/
pönnustykki á fleti sem eru eldfimir eða þola illa hita.
ÞRIF
Hreinsa má matreiðslu-/pönnustykkið í uppþvottavél.
OUTDOORCHEF.COM
skal hafa lokið opið. Aðeins í stillingunni
er einnig
.
.
157

Publicité

Table des Matières
loading

Ce manuel est également adapté pour:

Arosa 570 g sbArosa 570 g sb serie

Table des Matières