Outdoorchef AROSA 570 G Manuel page 78

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 19
GAS SAFETY SYSTEM (GSS)
Allar AROSA-gerðirnar eru búnar nýstárlega gasöryggiskerfinu GAS SAFETY SYSTEM (GSS) sem býður upp á eftirfarandi eiginleika:
FLAME GUARD
FLAME GUARD er lokað kerfi sem samanstendur af kveikju og loga. Þegar skrúfað er frá gasinu og kveikjunni er beitt kviknar á loganum í kerfinu.
FLAME GUARD ver logann fyrir áhrifum veðurs, eins og vindhviðum, og sér til þess að alltaf kvikni aftur á brennurunum af sjálfu sér ef slokkna
skyldi á þeim*. Logandi brennararnir virka þannig áreiðanlega við mismunandi veðurskilyrði (t.d. í vindi).
Kostirnir:
Logandi brennararnir eru vel varðir fyrir veðri og vindum.
Hægt er að grilla við lágt hitastig frá 80 gráðum, líka í vindi.
Komið er í veg fyrir að gas leki út án þess að brenna.
* MIKILVÆGT: Það er ekki alveg öruggt að ekki slokkni á brennurunum við erfið veðurskilyrði. Þegar grillað er með gasi verður að gæta þess að
skilja grillið aldrei eftir án eftirlits. Allar prófanir voru framkvæmdar við skilyrði á rannsóknarstofu.
SAFETY LIGHT
Logandi öryggiseiginleiki. SAFETY LIGHT er öryggisljós á AROSA 570 G sem kviknar á þegar gasstillihnappinum er snúið úr stöðu
í áttina
og þannig opnað fyrir gasstreymið. Í hverjum stillihnappi fyrir sig er ljósdíóða. SAFETY LIGHT-kerfið fær straum úr AAA-
rafhlöðunum sem fylgja með.
Kosturinn:
Safety Light-kerfið minnir notandann á að opið er fyrir ventilinn og gas streymir.*
* MIKILVÆGT: Þegar búið er að grilla skal ávallt gæta þess að skrúfa fyrir gaskútinn og loka fyrir gaskranann.
OUTDOORCHEF.COM
rangsælis
154
GOURMET BURNER TECHNOLOGY (GBT)
360°
80°
Allar AROSA-gerðirnar eru búnar brennurum af nýjustu kynslóð sem bjóða upp á samfellt og órofið hitasvið á bilinu 80 – 360 gráður. Þetta býður
upp á alveg nýja notkunarmöguleika fyrir grillið, þar sem hægt er að grilla, elda eða baka á öllum hitasviðum.
Hitasvið/notkun:
HITASTIG
lágm.
u.þ.b. 80*
miðl.
u.þ.b. 120*
hám.
u.þ.b. 170*
lágm.
u.þ.b. 170*
miðl.
u.þ.b. 240*
hám.
u.þ.b. 300*
algjört hám.
u.þ.b. 360*
* Viðmiðunargildi án tillits til veðuráhrifa
ÁBENDINGAR:
Hægeldun (80 – 130 gráður):
Með því að stilla grillið á 80 gráðu hita er hægt að skapa fullkomin skilyrði til þess að hægelda kjöt eða fisk við 80 gráður eða til þess að halda
mat heitum (trektin í venjulegri stöðu).
Við hitastig á bilinu 110 – 130 gráður er hægt að laga sígilda grillrétti á borð við nauta-brisket, „pulled pork" eða grísarif á fullkominn hátt
(trektin í venjulegri stöðu).
Grillað, eldað, bakað (130 – 220 gráður):
Við hitastig á bilinu 130 – 220 gráður er hægt að grilla kjöt, fisk og fleira fullkomlega jafnt (trektin í venjulegri stöðu). Þetta hitastig hentar
sérstaklega vel fyrir stór kjötstykki. Það hentar einnig mjög vel fyrir eldun eða bakstur.
Hár hiti (220 – 360 gráður):
Með hámarkshita allt að 360 gráðum er hægt að snöggsteikja og steikurnar verða pottþéttar. Auk þess hentar hámarkshitinn fullkomlega
til að grilla stökkar pítsur (trektin í venjulegri stöðu).
OUTDOORCHEF.COM
LÍTILL BRENNARI
STÓR BRENNARI
155

Publicité

Table des Matières
loading

Ce manuel est également adapté pour:

Arosa 570 g sbArosa 570 g sb serie

Table des Matières