3M PELTOR WS LiteCom Pro III Mode D'emploi page 82

Masquer les pouces Voir aussi pour PELTOR WS LiteCom Pro III:
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 12
IS
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða
og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar
rangt eða notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í
hættulegum hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar
eða -taps. Ræddu við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar
notenda eða hafðu samband við tæknideild 3M til þess að
kynna þér rétta notkun. Ef þér finnst eins og þú sért með
bómull í eyrunum eða heyrir són eða suð í eða eftir hávaða
(byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra ástæðu
til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu yfirgefa
hávaðasama umhverfið umsvifalaust og hafa samband við
lækni og/eða verkstjóra þinn.
VIÐVÖRUN
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það leitt til
alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð, getur það
dregið úr athygli á umhverfinu og getunni til þess að heyra
viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt stillt
og mögulegt er að sætta sig við. Erfiðara getur reynst að heyra
viðvörunarmerki á vinnustaðnum á meðan hlustað er
á afþreyingu.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
dregið úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt til
heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að hver og einn notandi felli
heyrnarhlífarnar vandlega að sér. Sé notast við NRR- eða SNR-
staðla til þess að meta dæmigerða vernd á vinnustað, mælir 3M
með því að hávaðadeyfigildið sé lækkað um 50% í samræmi við
gildandi reglugerðir.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim komið
fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum komið fyrir
á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans til þess að
deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi upplýsingar um
rétta notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða forðastu
hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum
(t.d. öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að velja
sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess að þau hafi
sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana. Fjarlægðu allt annað
(t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól, hreinlætishlífar o.s.frv.)
sem gæti dregið úr einangrunargildi heyrnarhlífapúðanna og
verndargildi hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspöng eða hálsspöng
og gættu þess að hún sé nógu öflug til þess að halda
heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f. Heyrnarhlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir
með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu millibili í leit
að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu heyrnarhlífapúðarnir notaðir
reglulega, ber að skipta um þá og frauðhringina að minnsta
kosti tvisvar á ári til þess að viðhalda fullnægjandi vernd,
hreinlæti og þægindum.
g. Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur farið
fram yfir dagleg hávaðamörk. Hafðu hljóðið eins lágt stillt og
mögulegt er að sætta sig við
FP3806_LiteCom_revb.indd 79
.
79
VIÐVÖRUN
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti
farið fram yfir dagleg hávaðamörk.
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika heyrnarhlífanna.
• Afköst geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla
minnkar. Gera má ráð fyrir því að rafhlaðan í
heyrnarhlífunum endist dæmigert í 8–13 klukkutíma við
samfellda notkun.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru þessari.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Heyrnarhlífar festar á hjálm eru í stórri stærð.
Heyrnarhlífar sem uppfylla kröfur í EN 352-3 eru í
millistærð eða litlar eða stórar. Heyrnarhlífar í millistærð
henta meirihluta notenda. Litlar eða stórar heyrnarhlífar
eru hannaðar fyrir notendur sem ekki geta notað
millistærðina.
• Þessar samanfellanlegu heyrnarhlífar eru í stórri stærð.
Heyrnarhlífar sem uppfylla kröfur í EN 352-1 eru í
millistærð eða litlar eða stórar. Heyrnarhlífar í millistærð
henta meirihluta notenda. Litlar eða stórar heyrnarhlífar
eru hannaðar fyrir notendur sem ekki geta notað
millistærðina.
VARÚÐ:
• Sé röng rafhlaða notuð, getur verið hætta á sprengingu.
• Hætta er á eldsvoða og brunasárum, séu Lithium ion
rafhlöður notaðar. Ekki opna, brjóta, kveikja í eða hita upp
í meira en 50°C (122°F).
ATHUGASEMD
• Þegar heyrnarhlífarnar eru notaðar í samræmi við
leiðbeiningar notenda, draga þær bæði úr stöðugum
hávaða, svo sem í iðnaði eða frá ökutækjum og flugvélum,
og skyndilegum hávaða, til dæmis byssuskotum. Erfitt er
að segja fyrir um þá heyrnarvernd sem þörf er á eða í raun
er veitt hvað varðar váhrif af skyndilegum hávaða. Það
hefur áhrif á vernd gegn hávaða frá byssuskotum um hvaða
tegund vopns er að ræða, hve mörgum skotum er hleypt
af, hvaða heyrnarhlífar eru valdar, hvernig þær passa og
eru notaðar, hvernig um þær er annast og fleira. Kynntu þér
betur heyrnarvernd gegn skyndilegum hávaða á vefsíðunni
www.3M.com/hearing.
• Heyrnartólin eru búin styrkstýrðri hljóðdeyfingu. Notandi ætti
að kynna sér rétta notkun þeirra áður en hún hefst. Ef hljóð
er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita ráða
hjá framleiðanda um viðhald og hvernig skipta á um rafhlöðu.
• Á heyrnarhlífunum er innstunga fyrir hljóðtæki. Notandi ætti
að kynna sér rétta notkun þeirra áður en hún hefst. Ef hljóð
er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita
lausna í handbók framleiðanda.
• Heyrnarhlífarnar takmarka hljóðmerki við afþreyingarhlustun
við 82 dB(A) við eyra.
!
2017-06-01 14:18:54

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières