Þjónustu- og viðhaldsupplýsingar
Þjónusta og viðhald lækningatækis er að öllu leyti á ábyrgð eiganda hvers tækis.
Ef ekki er hægt að sinna þjónustu og viðhaldi tækis í samræmi við leiðbeiningarnar kann ábyrgð
tækisins að falla úr gildi. Ennfremur getur það komið niður á klínísku ástandi eða öryggi notanda og/
eða umönnunaraðila ef tæki er ekki þjónustað og viðhaldið. Ekki má sinna þjónustu og viðhaldi meðan
notandinn situr í stólnum. Ef þörf krefur skal hafa samband við næsta söluaðila til að fá aðstoð við
uppsetningu, notkun eða hvernig á að sinna þjónustu og viðhaldi á tækinu.
Endingartími
Endingartími tækisins við venjulega notkun
er 8 ár, svo framarlega sem viðhald og
þjónusta fer fram og er skráð í samræmi við
leiðbeiningar framleiðanda.
Endurnotkun
Þetta tæki og fylgihlutir/íhlutir þess henta vel
til endurnotkunar.
Endurbætur til endurnotkunar
Áður en varan er notuð aftur eða skipt er um
notanda skal fylgja þjónustugátlistanum og
hreinsunarleiðbeiningum, ásamt því að skoða
hana reglulega.
Þjónustutíðni
Tíðni skoðana fer eftir notkun og sliti. Mælt
er með því að tækið sé skoðað árlega, í hvert
sinn sem því er úthlutað á annan notanda og
eftir langtíma geymslu (lengur en 4 mánuðir).
Aðili sem hefur skilning á notkun tækisins skal
sjá um skoðunina.
Gátlisti þjónustuskoðunar
Skoða skal eftirfarandi atriði, með hliðsjón
af tilætlaðri notkun þeirra:
• ganga skal úr skugga um að rær og boltar
á tækinu séu nægilega vel hert
• leita skal eftir merkjum um sprungur
eða slit
• ganga skal úr skugga um að allar
merkingar á tækinu séu heilar
• ganga skal úr skugga um að allir
aukahlutir, áfestir hlutir og virkni sé eins
og til er ætlast
• ganga skal úr skugga um að
stillingarvalkostir fótskemils séu í lagi og
að hægt sé að læsa stöðu hans og festa
útdraganlegu rörin í ákveðinni stöðu
• ganga skal úr skugga um að hægt sé að
stilla sætisbakið og læsa því í ákveðinni
stöðu
• ganga skal úr skugga um að sætið sé
stillanlegt og haldist í þeirri stöðu sem
það er stillt í
• ganga skal úr skugga um að hægt sé
að hækka og lækka stoðgrindina
• ganga skal úr skugga um að rafknúnar
útgáfur geti haldið rafmagni eftir hleðslu
rafhlöðunnar
og lagfæra eftir þörfum.
Gera skal við eða skipta um skemmda eða
slitna hluti.
XX
IS
Viðhald
Fyrir hverja notkun er mælt með að:
þurrka öll óhreinindi af tækinu með klút sem
vættur hefur verið með volgu vatni og mildu
klórfríu hreinsiefni/sápu, og leyfa tækinu
að þorna fyrir notkun.
Leita skal eftir merkjum um skemmdir eða slit.
Hreinsun
Aðaltækið
Tækið má þvo við 60°C með mildu þvottaefni
í 10 mínútur í þvottavél sem er ætluð fyrir
lækningatæki. Notið þurrkunaraðgerð
vélarinnar til að þurrka tækið. Fjarlægið allan
aukabúnað og þvoið hann sérstaklega.
Hallaðu/snúðu tækinu eftir þvott til að
auðvelda vatnsrennsli innan úr tækinu.
Fyrir þvott
Forðist að fjarlægja smurefni af
stimpilstöngum, dragið hreyfiliði til baka í
lágmarksslaglengd.
• Fjarlægið alla aukahluti, takið allar snúrur
úr sambandi og gætið þess að fjarlægja
rafhlöðuna.
• EKKI má hreinsa afleininguna með
háþrýstidælu eða gufuhreinsi.
Eftir þvott
• Gangið úr skugga um að afleining sé rétt
sett upp.
• Gangið úr skugga um að fjarstýringin
virki sem skyldi
Efni og áklæði
Sessuáklæðið má þvo við 60°C með mildu
þvottaefni í þvottavél.
Fylgið merkingum á öðrum efnum og
áklæðum.
Takið áklæðið af svampinum fyrir þvott.
Svampur
Eftirfarandi svamphluti má þvo við 40°C með
mildu þvottaefni í þvottavél:
• Svampur sætispúða
• Svampur bakpúða
Á meðan og eftir að svampur er þveginn skal
ekki beygla, kreista eða snúa upp á hann þar
sem það getur aflagað hann.
Ekki er ráðlagt að þvo aðra svamphluta.
Handþvottur
Einnig er hægt að þvo tækið og alla aukahluti
í höndunum. Notið volgt vatn og milt klórfrítt
hreinsiefni/sápu og leyfið öllum hlutum að
199
etac.com