Etac R82 Wombat Living Mode D'emploi page 197

Table des Matières
Öryggi
Merkingar, tákn og leiðbeiningar verða að vera til staðar, vera læsilegar og vel sýnilegar þar til end-
ingartími tækisins er liðinn. Ólæsilegar eða skemmdar merkingar, tákn eða leiðbeiningar skal strax
skipta um eða lagfæra. Fá má leiðbeiningar hjá næsta söluaðila.
Ef fylgikvillar koma fram sem rekja má til notkunar tækisins skal tilkynna slík tilvik tímanlega til næsta
söluaðila og lögbærra landsyfirvalda. Söluaðili mun koma þessum upplýsingum áfram til framleiðanda.
Umönnunaraðili
• Lesið notendahandbókina vandlega fyrir
notkun og geymið hana til síðari nota. Ef
þetta tæki er notað með röngum hætti
getur það valdið notanda alvarlegum
meiðslum.
• Þegar lyfta þarf notanda skal ávallt nota
réttar aðferðir og hjálpartæki.
• Notandi má aldrei vera eftirlitslaus í
tækinu. Tryggja skal að umönnunaraðili
sinni stöðugu eftirliti.
• Allar viðgerðir og viðhald skulu fara fram
með nýjum varahlutum og útbúnaði
frá R82, og skulu gerð í samræmi
við leiðbeiningar og fyrirmæli um
viðhaldstímabil frá söluaðila.
• Aðeins þeir einstaklingar sem hafa lesið
notendahandbókina mega gera stillingar
og breytingar á tækinu og aukahlutum
þess.
• Áður en notanda er leyft að nota
fjarstýringuna þarf að meta hvort
vitsmunageta notanda leyfi það.
• Þegar sætishalli er notaður er hætta á
að notandi missi jafnvægið. Stýra verður
sætishalla með öruggum hætti.
• Ef vafi leikur á öryggi við notkun R82­
tækisins eða ef bilanir koma upp skal
taka tækið samstundis úr notkun og hafa
tafarlaust samband við söluaðila.
• Ekki er heimilt að flytja tækið milli staða
meðan notandi situr í því. Flytja má tækið
stuttar vegalengdir ef notandi er tryggilega
festur í það. Ekki má fara yfir hindranir
meðan á flutningi stendur.
• Þegar hreyfanlegir hlutar eru stilltir skal
gæta þess að líkamshlutar klemmist ekki
eða festist.
• Fyrir uppsetningu stoðtækja/aukahluta
skal ganga úr skugga um að engin hætta
sé á meiðslum.
• Ekki má leyfa börnum og ungmennum að
leika sér með fjarstýringuna.
• Mikilvægt er að fjarlægja plastpokann
áður en fjarstýringin er notuð. Snúrum þarf
að vera komið fyrir þannig að notendur og
umönnunaraðilar geti ekki hrasað um þær.
• Gætið að ábendingum um HÁMÖRK fyrir
stillingu.
• Nota skal tækið á jafnsléttu þar sem engar
hindranir eru til staðar. Ef undirlag er sleipt
er erfiðara að stjórna tækinu.
• Við notkun í halla skal stuðst við síðu þar
XX
IS
sem sjá má mælingar.
• Kannið yfirborðshita tækis áður en
notandinn er færður í stólinn. Þetta
á sérstaklega við ef notandi er með skerta
húðskynjun og finnur ekki fyrir hita eða
kulda. Ef yfirborðshiti er yfir 41°C skal
leyfa tækinu að kólna fyrir notkun.
• Verjið pumpuna gegn þrýstingi og háum
hita. EKKI má gera gat á hana.
• Notið aðeins afleininguna innan tilgreindra
vinnslumarka.
• Verjið stimpilstöngina gegn rispum, o.s.frv.
- þegar pumpan er stillt er mikilvægt að
setja efnisbút milli verkfærisins sem notað
er og stimpilstangarinnar.
• Gangið úr skugga um að hjólin virki sem
skyldi og séu örugg fyrir notkun.
• Setjið bremsurnar á áður en notandi er
færður í stólinn.
• Fyrir notkun skal skoða tækið og alla
aukahluti þess og skipta út slitnum
hlutum.
• Gangið úr skugga um að tækið sé stöðugt
áður en notandi sest í stólinn.
• Framkvæmið allar stillingar á tækinu og
aukahlutum þess og gangið úr skugga
um að allir hnúðar, skrúfur og sylgjur séu
tryggilega fest fyrir notkun. Geymið öll
verkfæri þar sem börn ná ekki til.
Notandi
• Notandi getur stjórnað sætishalla og -hæð
undir eftirliti umönnunaraðila.
Tæki
• Afleiningin er ekki með öryggisstöðvun.
• Reynið ekki að gera við neinn hluta
afleiningarinnar.
• Fótskemillinn er ekki með burðarþol
og má aðeins nota til stuðnings.
• Þegar fótskemillinn er nálægt gólfinu
og hjólunum geta hjólin hugsanlega ekki
snúist.
• Þetta tæki er prófað með tilliti til
íkveikjuþols þegar ekki hefur kviknað í því,
í samræmi við gildandi staðla.
• Ef aukahlutir sem ekki eru frá R82 eru
notaðir er hugsanlegt að það hafa áhrif
á brunaþol tækisins.
• Ekki má sitja í stólnum í vélknúnu ökutæki.
Notandi þarf að vera í sæti ökutækisins
og tækið í farangursrými.
• Notandi má ekki sitja í stólnum meðan
stóllinn er fluttur inn í eða út úr ökutæki
197
etac.com
Table des Matières
loading

Table des Matières