Heimil og óheimil staðsetning
Axkid MINIKID 4 MAX bílstóls
Axkid MINIKID 4 MAX bílstól er aðeins hægt að setja upp bakvísandi. Það passar í flestar, en ekki allar sætisstöður. Skoðaðu
leiðbeiningarhandbók ökutækisins til að finna viðeigandi sætisstöðu og athugaðu ökutækjalistann á www.axkid.com
Framsæti farþega (óvirkur loftpúði)
JÁ/NEI*
Framsæti farþega (virkur loftpúði)
NEI
Farþegasæti að aftan með 3ja punkta bílbelti
JÁ
Sæti með 2ja punkta bílbelti
NEI
Hliðar- og bakvísandi sæti
NEI
MIKILVÆGT: Ef þú vilt setja upp Axkid MINIKID 4 MAX bílstólinn á stað þar sem loftpúði er fyrir framan, verður að aftengja loftpúðann
samkvæmt leiðbeiningum frá framleiðanda ökutækisins. Athugið að sum ökutæki þurfa viðurkennda þjónustumiðstöð til að aftengja
loftpúðann.
* Almenn umferðarreglugerð á Spáni, í grein 117, kveður á um bann við akstri með börn sem eru 135 sentímetrar að hæð eða minna í
framsætum ökutækis, án undantekninga.
Neðri ólarfestingar
Mikilvægar upplýsingar
Neðri ólarafestingar (LTA) eru notaðar til að auka vernd barna í bílum með því að veita trausta og stöðuga uppsetningu fyrir framlengda
afturvísandi, beltafesta bílstóla. Þetta eykur öryggi barnsins í öllum tegundum árekstra, þar með talið veltum og aftanákeyrslum.
Neðri ólar eru vel þekkt aðferð sem hefur verið mikið notuð á Norðurlöndunum í yfir 40 ár. Árið 2020 var gefinn út nýr alþjóðlegur staðall
fyrir LTA, ISO13216-4:2020. Þessi staðall lýsir kröfum um neðri ólar fyrir bílstóla en einnig fyrir bílaframleiðendur og festipunkta þeirra.
Tilgangurinn er að bæta samhæfni og tryggja örugga og auðvelda uppsetningu til framtíðar.
Axkid MINIKID 4 MAX neðri ólar eru í samræmi við ISO13216-4:2020, sem tryggir að stóllinn passi fullkomlega og auðveldar uppsetningu í
ökutækjum með foruppsettum neðri ólarafestingum sem eru einnig í samræmi við þennan staðal. Ef ökutækið þitt er með festipunkta sem
eru ekki í samræmi við staðalinn, er samt líklegt, en ekki öruggt, að neðri ólar Axkid MINIKID 4 MAX passi.
Foruppsettar neðri ólarafestingar í ökutækjum eru oft á sætissleðunum sem festir eru við gólfið, en aðrar stöður eru einnig notaðar.
Skoðaðu handbók ökutækisins til að fá frekari upplýsingar um nothæfa festipunkta.
Ef ökutækið þitt hefur engar foruppsettar neðri ólarfestingar, þá fylgja Axkid MINIKID 4 MAX viðbótar neðri ólarfestingar (S) sem hægt er
að setja í ökutækið þitt. Sjá þessa handbók fyrir leiðbeiningar um uppsetningu. Þessar ólar eru einnig í samræmi við ISO13216-4:2020 og
þegar þær eru settar upp á réttan hátt bjóða þær upp á sama öryggi og foruppsettar festingar.
Sumir bílaframleiðendur bjóða einnig upp á möguleika á að setja neðri ólarfestingar í eftir á. Hafðu samband við framleiðanda ökutækisins
eða söluaðila til að fá frekari upplýsingar. Axkid neðri ólarafestingar sem settar eru í eftir á og auka neðri ólarfestingar er hægt að kaupa
sérstaklega.
Athugið: Notaðu aldrei Axkid MINIKID 4 MAX án neðri ólanna. Þær eru mikilvægur öryggisbúnaður og skal ávallt nota þegar bílstóllinn er
settur upp.
156
156
Uppsetning neðri ólarfestinga
Ef ökutækið þitt er ekki með viðeigandi foruppsettar neðri ólarfestingar, þá kemur Axkid MINIKID 4 MAX með neðri
ólarfestingum sem hægt er að setja í ökutækið þitt. Það fer eftir ökutækinu þínu og sætisstöðunni þar sem þú velur að
setja bílstólinn þinn upp. Það eru ýmsir mögulegir festipunktar til að nota til við uppsetningu festiólanna. Sjá valkosti hér
að neðan.
Til að setja neðri ólarfestingarnar (S), þræddu einfaldlega ólina í kringum valinn festipunkt og þræddu málmfestinguna í
gegnum eina af raufunum á ólinni sjálfri. Festiólin er með nokkrar raufar til að nota. Gakktu úr skugga um að nota raufina
eins nálægt málmfestingunni og hægt er og settu þannig málmfestinguna eins nálægt gólfi ökutækisins og mögulegt
er. Þegar þessu er lokið skaltu toga í málmfestinguna til að herða ólina og endurtaka ferlið fyrir hina ólina. Notaðu alltaf
tvo festipunkta þegar Axkid MINIKID 4 MAX er sett upp og veldu festingar sem eru aðskildir þar sem það veitir stöðugri
uppsetningu.
Valkostir til að leiða festiól
a
Leggðu ólina í kringum foruppsettu festinguna (notaðu þessa aðferð aðeins ef foruppsettu festingarnar
valk.
passa ekki beint við neðri ólarnar)
b
Settu ólina utan um sætissleðann fyrir framan bílstólinn með því að þræða ólina á milli sætissleðans og
valk.
gólfs ökutækisins eða í gegnum viðeigandi gat á sætissleðanum.
c
Settu ólina utan um löm ökutækissætisins fyrir framan bílstólinn með því að þræða ólina á milli stólsbaks
valk.
ökutækisins og stólpúðans.
d
Settu ólina utan um sætissleðann fyrir neðan bílstólinn með því að þræða ólina á milli sætissleðans og
valk.
gólfs ökutækisins eða í gegnum viðeigandi gat á sætissleðanum.
e
Þegar Axkid MINIKID 4 MAX er komið fyrir í farþegasætinu að framan og enginn af ofangreindum
valk.
valkostum er í boði, er hægt að festa neðri ólarfestingarnar við viðeigandi festipunkt aftan í ökutækinu
og beina ólunum undir ökutækissætið fram í ökutækið. Gakktu úr skugga um að festiólarnar komi út fyrir
framan sætið en ekki út frá hliðunum.
Athugið: Gakktu ávallt úr skugga um að breyting á stöðu ökutækissæta trufli ekki eða skemmi uppsettu neðri
ólarfestingarnar
Athugið: Notaðu aldrei beitta hluti til að aðstoða við að þræða ólarnar þar sem það gæti skemmt ólina.
157
157
IS