ABL Wallbox eMH2 Mode D'emploi page 155

Masquer les pouces Voir aussi pour Wallbox eMH2:
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 40
ƒ Ekki má setja vöruna upp nálægt rennandi vatni eða vatni sem skvettist eða á svæðum þar sem hætta
er á flóðum.
ƒ Ekki má setja vöruna upp á svæðum þar sem er sprengihætta (EX-svæðum).
ƒ Uppsetning rafmagns skal framkvæmd samkvæmt staðarreglum af hæfum rafvirkja, sem á grundvelli
sérþjálfunar og reynslu, ásamt þekkingu á viðkomandi reglugerðum, getur metið og framkvæmt þá
vinnu sem lýst er í þessari handbók og borið kennsl á mögulegar hættur.
ATHUGIÐ
Tilkynningaskylda
Vinsamlegast athugið að raforkufyrirtæki, veitufyrirtæki eða innlendar reglugerðir geta krafist
tilkynningar eða leyfis fyrir uppsetningu eða rekstri hleðslustöðvar.
ƒ Gangið úr skugga um að málspenna og -straumur vörunnar uppfylli kröfur fyrir veitukerfi rafmagns á
staðnum og að ekki sé farið yfir málafl meðan á notkun stendur.
ƒ Ekki má byrja að nota vöruna fyrr en faglærður rafvirki hefur yfirfarið hana.
ƒ Ekki má líma neitt á vöruna eða hylja hana með öðrum hlutum eða efni.
ƒ Ekki má setja neinn vökva eða ílát með vökva á vöruna.
ƒ Athugið að ef þráðlausir sendar eru notaðir nálægt vörunni (< 20 cm) getur það valdið truflunum á
virkni hennar.
ƒ Ekki er ætlast til að þessi vara sé notuð af einstaklingum (þar með töldum börnum) með skerta
líkamlega, skynjunartengda eða andlega hæfni eða sem skortir reynslu og/eða þekkingu, nema þeir
séu undir umsjón einhvers sem ber ábyrgð á öryggi þeirra eða þeir hafi fengið leiðbeiningar um hvernig
eigi að nota vöruna.
ƒ Hafa verður eftirlit með börnum þannig að þau séu ekki að leika sér að vörunni.
ƒ Alls ekki má breyta vörunni með neinum hætti. Öll brot á þessum leiðbeiningum leiða af sér
öryggishættu, brjóta í grundvallaratriðum gegn ákvæðum ábyrgðar og geta tafarlaust ógilt hana.
ƒ Eingöngu faglærðir rafvirkjar mega gera við bilanir sem öryggi fólks eða vörunni sjálfri stafar hætta af.
ƒ Vinsamlegast hafið samband við rafvirkja komi einhver af eftirfarandi bilunum upp:
y Ytra byrði vörunnar hefur orðið fyrir hnjaski, lokið hefur verið fjarlægt eða ekki er hægt að loka því.
y Varan virkar ekki eins og hún á að gera.
y Hleðsluinnstunga, föst hleðslusnúra eða hleðslutengill hafa orðið fyrir sjáanlegum skemmdum eða
starfa ekki rétt.
Notkunarleiðbeiningar
ƒ Fylgið ávallt gildandi öryggisreglum um notkun raftækja á staðnum þar sem varan er notuð.
ƒ Til þess að taka vöruna alveg úr sambandi við rafmagn verður að slá út sjálfvörum og
lekastraumsrofum í rafmagnstöflu hússins.
ƒ Tryggið að hleðslusnúra sé aldrei of strekkt.
ƒ Gætið þess að varan sé ávallt lokuð og læst á meðan hún er í notkun.
ƒ Gætið þess að aka ekki yfir hleðslusnúruna, brjóta upp á hana eða klemma hana. Sýnið alltaf sérstaka
aðgát við meðhöndlun hleðsluklóa og hleðslutengla.
Wallbox eMH2 – Notkunarleiðbeiningar
|
155

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières