Þjónusta, Viðhald; Flutningur, Geymsla Og Förgun - Etac Alto Mode D'emploi

Table des Matières
Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 64
Etac / Alto / www.etac.com
Þjónusta og viðhald
is
Viðhald, skoðun og hreinsun skal framkvæma reglulega.
Leitið eftir bilunum, vélrænum skemmdum, sliti og sprungum.
Skipta verður um slitna íhluti.
Ef íhlutir eru gerðir upp þarf að fylgja leiðbeiningum um slíkt.
Nota verður upprunavarahluti frá Etac þegar hlutum er skipt út.
Fylgja verður samsetningarleiðbeiningum við uppsetningu
á varahlutum. Leiðbeiningar um uppgerða hluti,
samsetningarleiðbeiningar og varahlutalista er að finna á
www.etac.com.
Notendur skulu ekki gera við tæki sjálfir. Hætta
á meiðslum. Viðgerðir skulu framkvæmdar af fagfólki.
Litíum-rafhlaða
Hleðslurafhlöður eru rekstrarvörur sem verða afkastaminni
með tímanum. Minni afkastageta getur leitt til styttri notkunar
á milli hleðslna.
Endurhlaða skal rafhlöður að lágmarki á 12 mánaða fresti.
Hreinsun og sótthreinsun
Hreinsun verður að fara fram reglulega. Hugsanlega þarf að
hreinsa vöruna á milli notenda til að forðast sýkingu.
- Hreinsið vöruna með hefðbundnum hreinsiefnum án svarfefna
(pH á milli 5 og 9). Skolið og þurrkið.
- Sótthreinsið vöruna með 70% sótthreinsispritti. Látið þorna
af sjálfu sér.
Hreinsun í klínísku umhverfi:
Hreinsið vöruna og aukahluti hennar í þvottavél eða á
þvottabraut (nema annað sé tekið fram).
Þvottur í þvottavél eða iðnaðarþvottavél þarf að uppfylla
EN/ISO 60601-2-52.
Ekki má fara yfir viðmiðunarmörk samkvæmt
EN/ISO 60601-2-52.
Fyrir þvott:
- Festa skal vöruna og koma henni fyrir uppréttri með hjólin
læst. Til að viðhalda sveigjanleika snúranna er mikilvægt
að snúran sé staðsett þannig að þyngd snúrunnar hvíli
ekki á spíralnum meðan á þvottaferlinu stendur.
- Setja skal tappa í tengisnúrurnar meðan á hreinsun stendur
til að koma í veg fyrir vatn komist inn.
- Aðeins skal þvo hreyfiliðann þegar bullustöngin er inndregin
að fullu til að tryggja að forsmurða innra rörið haldist smurt.
Smíðaefnið þolir algeng sótthreinsiefni.
Eftirfarandi aðferðir við meðhöndlun yfirborðs hafa verið
notaðar til að varna tæringu:
Málað yfirborð = dufthúðað pólýester.
Ómálað stályfirborð = Fe/Zn-Ni
5 ára ábyrgð á efnis- og framleiðslugöllum. Upplýsingar um
skilmála eru á www.etac.com.
Flutningur, geymsla og förgun
Geymsla
Hitastig -10°C til +50°C
20–80% rakastig, án rakaþéttingar, loftþrýstingur 700 til 1060
hPa (hægt að geyma í ≤ 3000 m hæð).
Ekki fara yfir geymsluhitastig þar sem það styttir endingartíma
og skerðir afköst vörunnar.
Endurhleðsla við geymslu: Fyrsta endurhleðsla rafhlöðunnar
skal ekki vera síðar en 12 mánuðum eftir framleiðsludag sem
tilgreindur er á merkimiðanum.
Eftir það skal endurhlaða rafhlöðuna minnst einu sinni á 12
mánaða fresti.
Ef rafhlaðan hefur misst alla hleðslu skal endurhlaða hana fyrir
geymslu.
Ekki geyma rafhlöðuna nálægt eldfimum efnum.
Ef tækið hefur verið geymt lengi (lengur en fjóra mánuði) þarf
sérfræðingur að kanna virkni rafhlöðunnar fyrir notkun.
Flutningur
Hitastig -10°C til +50°C
20–80% rakastig, án rakaþéttingar, loftþrýstingur 700 til 1060
hPa (hægt að geyma í ≤ 3000 m hæð).
Ef hreyfiliðinn er samsettur í kerfinu og verður fyrir þrýstingi eða
togi meðan á flutningi stendur getur hann skemmst.
Ekki missa hreyfiliðann eða skemma húsið utan um hann á
annan hátt við sundurhlutun eða flutning.
Pakka þarf litíum-rafhlöðunum og flytja í samræmi við gildandi
reglugerðir. Leitið ávallt upplýsinga hjá flutningsaðila um hvernig
flytja eigi litíum-rafhlöður.
Förgun
Rafhlöður:
Skilið inn rafhlöðum til endurvinnslu í samræmi við gildandi
reglur á hverjum stað.
Hreyfiliði og stjórnstöð:
Skilið inn rafeindaíhlutum til endurvinnslu.
72
Table des Matières
loading

Table des Matières