Télécharger Imprimer la page

Chamberlain COMFORT Notice De Montage Et De Commande page 137

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 30
30.2
Að skipta um rafhlöður í fjarstýringunni
Rafhlaða fjarstýringarinnar:
Rafhlöðurnar í fjarstýringunni hafa sérstaklega langan líftíma.
Ef sendidr-ægni minnkar, verður að skipta um rafhlöðurnar.
Ábyrgðin nær ekki til rafhlaða.
Vinsamlegast farðu eftir eftirtöldum leiðbeiningum fyrir rafhlöður:
Ekki ætti að meðhöndla rafhlöður sem heimilissorp. Lög krefjast þess að
allir neytendur fargi rafhlöðum á réttan hátt á útnefndum förgunarstöðum.
Reyndu aldrei að endurhlaða rafhlöður sem ekki er ætlast til að séu
endurhlaðnar. Sprengihætta!
Haltu rafhlöðum fjarri börnum, ekki valda skammhlaupi í þeim og taktu þau
ekki í sundur.
Leitaðu læknis tafarlaust ef rafhlaða er gleypt.
Ef þess þarf skaltu þrífa tengin á rafhlöðum og búnaði fyrir hleðslu.
Fjarlægðu tómar rafhlöður úr búnaðinum tafarlaust! Aukin hætta á leka!
Láttu rafhlöðurnar aldrei verða fyrir of miklum hita, eins og sólskini,
eldi eða álíka!
Það er aukin hætta á leka!
Forðastu snertingu við húð, augu og slímhimnur. Skolaðu þá hluta sem
hafa komist í snertingu við rafgeymasýru með miklu magni af köldu vatni
og leitaðu læknis tafarlaust.
Skiptu alltaf um allar rafhlöður á sama tíma.
Notaðu einungis rafhlöður af sömu tegund; notaðu aldrei mismunandi
tegundir né blandaðu saman notuðum og nýjum rafhlöðum.
Fjarlægðu rafhlöðurnar ef búnaðurinn hefur ekki verið notaður í langan
tíma.
Skipt um rafhlöðu:
Til að skipta um rafhlöðu skal opna fjarstýringuna að aftanverðu með
skrúfjárni. Lyftið lokinu og takið út stýringuna sem liggur undir því.
Ýtið rafhlöðunni til hliðar og fjarlægið hana. Gætið þess að víxla ekki
plús- og mínusskautunum þegar nýjar rafhlöður eru settar í.
Setjið fjarstýringuna aftur saman.
TAKTU EFTIR!
Sprengihætta ef ranglega er skipt um rafhlöðu. Einungis má skipta um
rafhlöðu með sömu eða jafngildri tegund (10A20-WH.
31
Ljós hurðaopnara
LED-ljós hurðaopnarans hefur afar langan líftíma og er viðhaldsfrítt. Ekki er
hægt að fjarlægja hylkið utan um ljósið.
32
Förgun
Umbúðirnar eru gerðar úr umhverfisvænu efni. Hægt er að skila þeim í söf-
nunargáma fyrir endurvinnslu á hverjum stað. Samkvæmt Evróputilskipun
2002/96/EB um rafbúnaðarúrgang verður að farga tækinu með viðeigandi
hætti þegar notkun þess er hætt til að tryggja endurnýtingu efnanna sem
notuð voru í tækið. Upplýsingar um förgun og söfnunarstöðvar fást hjá
yfirvöldum á hverjum stað.
33
Algengar spurningar
1. Hurðaopnari virkar ekki með fjarstýringu:
• Er opnarinn tengdur við rafmagn? Ef það kviknar ekki á lampa sem
tengdur er við rafmagnsinnstunguna, skaltu athuga öryggi eða aflrofa.
(Sumar innstungur er virkjaðar með veggrofa).
• Eru allar hurðarlæsingar afvirkjaðar? Sjá öryggisleiðbeiningar!
• Prófaðu að nota opnarann með nýrri rafhlöðu.
• Hafir þú tvö eða fleiri senditæki, þar sem aðeins eitt virkar, skaltu
athuga forritun móttakarans.
• Er snjór / klaki undir hurðinni? Ef já, gæti hurðin verið frosin við
jörðina. Fjarlægðu allar hindranir.
• Hurðarfjöðrin gæti verið biluð. Það verður að skipta um hana af
sérfræðingi.
2. Sendidrægni búnaðarins er of lítil:
• Er ný rafhlaða til staðar? Settu nýja rafhlöðu í.
• Prófaðu fjarstýringuna í bílnum annars staðar.
• Það dregur úr sendidrægninni þegar um er að ræða stálhurðar,
ál- eða málmplötur.
3. Hurð fer til baka af engri augljósri ástæðu:
• Er hurðin hindruð af einhverju? Togaðu í handvirkan sleppibúnað og
notaðu hurðina handvirkt. Sé um að ræða ójafnvægisstillt eða fast
hlið, vinsamlegast hafðu samband við þjónustudeildina.
• Endurforritaðu vinnsluafl og teygju opnarans.
• Hreinsaðu klaka eða snjó burt af lokunarsvæði hurðarinnar.
• Ef hurðin fer til baka þegar hún kemst í stöðuna 'Lokuð', verður að
stilla endamarkaskiptingu fyrir þessa hurðarstöðu.
Eftir að lokið hefur verið við hverja stillingu, verður að kanna
sjálfvirka sleppibúnaðinn aftur:
• Endurstilling endamarka endrum og eins er ekki óvenjuleg.
Sérstaklega getur veðrun fært hurðargáttina til.
4. Bílskúrshurðin opnast og lokast af sjálfsdáðum:
• Eyddu út af öllum senditækjum og endurforritaðu þau svo öll.
Sjáðu "Forritun annarra lófasenditækja".
• Er hnappurinn á fjarstýringunni fastur í "ON" (Kveikt) stöðu?
• Notaðu aðeins upprunalegar fjarstýringar! Notkun á vörum frá þriðja
aðila leiðir til truflana.
• Stutt var á hnappinn á fjarstýringunni fyrir slysni (í vasa).
• Kapall veggrofans er skemmdur (fjarlægðu til að hægt sé að prófa).
• Aukabúnaður sem tengdur er við opnarann veldur virkjun drifsins
(fjarlægðu til að hægt sé að prófa).
5. Hurð lokast ekki að fullu:
• Endurforritaðu teygju opnarans. Leitaðu eftir breytingum á vélrænum
hlutum, t.d. hurðarörmum og tengibúnaði. Eftir hverja nýja stillingu á
hurðarstöðunni "Lokuð", ætti að skoða virkni sjálfvirka sleppibú
naðarins.
is 09/13

Publicité

loading

Ce manuel est également adapté pour:

PremiumPremium ml1000ev