Mikilvæg Öryggisatriði - Outdoorchef LUGANO 570 G EVO Mode D'emploi

Masquer les pouces Voir aussi pour LUGANO 570 G EVO:
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 22
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
is
MIKILVÆGT: Lesið leiðbeiningarnar vandlega áður en OUTDOORCHEF gasgrillið er tekið í notkun.
0063
Outdoorchef AG
PIN 0063 BP 3505
Eggbühlstrasse 28, 8050 Zürich
Typ:
Article No.:
Made in China
DISTRIBUTION
Butane / Propane
30/37 mbar
Outdoorchef Deutschland GmbH
G30 / G31
Ochsenmattstr. 10 | 79618 Rheinfelden | Germany
Cat.I
Cat.I
+
3
3 B/P
Total rate Qn=
Σ
MIKILVÆGT:
Skráið hjá ykkur raðnúmer kúlugasgrillsins á bakhlið þessara notkunarleiðbeininga. Staðsetning númersins fer eftir gerð grillsins og er að
finna á upplýsingalímmiðanum, sem er annaðhvort á fótastelli grillsins eða botnplötu þess.
Mikilvægt er að hafa raðnúmerið og vörunúmerið við höndina til að flýta fyrir fyrirspurnum, þegar varahlutir eru pantaðir og fyrir allar
ábyrgðarkröfur. Geymið notkunarleiðbeiningarnar á vísum stað. Þær innihalda mikilvægar upplýsingar um öryggi, notkun og viðhald.
MIKILVÆG ÖRYGGISATRIÐI
Allir sem nota grillið verða að kynna sér nákvæmlega hvernig kveikt er upp í því og fara eftir leiðbeiningunum. Börn mega ekki nota grillið.
Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningunum nákvæmlega. Röng uppsetning getur haft hættulegar afleiðingar.
Gætið þess að hafa enga eldfima vökva og efni eða varagaskúta nálægt grillinu. Aldrei má koma grillinu eða gaskútnum fyrir í lokuðu rými án
loftræstingar.
Lesið leiðbeiningarnar vandlega áður en kúlugasgrillið er tekið í notkun. Eingöngu má nota grillið utandyra og það verður að standa í öruggri
fjarlægð frá brennanlegum efnum, minnst 1,5 m frá.
GASKÚTAR
Aðeins má setja gaskúta sem vega að hámarki 11 kg þegar þeir eru fullir á botnplötuna. Setjið kútinn á viðeigandi stað (skýringarm. 2A).
max Ø 310 mm
Gætið þess að allar skrúfaðar tengingar séu þéttar.
Framkvæmið LEKAPRÓFUN áður en grillið er tekið í notkun og í hvert sinn sem skipt er um gaskút.
Gaskútar mega ekki standa í hitastigi yfir 50 °C og þá má aldrei geyma í lokuðu rými eða kjallara.
Fylgið öryggisreglunum á gaskútunum.
Serial No.:
168
OUTDOORCHEF.COM
ATHUGIÐ: Gangið úr skugga um að þrýstijafnarinn og gashylkið séu leyfð til notkunar í viðkomandi landi. Notið eingöngu gashylki
samkvæmt gildandi staðli í viðkomandi landi. Þar sem þéttibúnaður er mismunandi verður skrúfaða tengingin ekki nægilega þétt ef
ekki er notuð rétt gerð af þrýstijafnara og gashylki. Gas lekur þá út og kviknað getur í því fyrirvaralaust vegna opins elds eða neista. Af
öryggisástæðum sem og vegna ábyrgðar mælir framleiðandi með því að gasgrill sem tekin eru til sölu séu yfirfarin og að þrýstistillir og
gasslanga séu löguð að gildandi reglum viðkomandi lands ef þess þarf.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Geymið þessar notkunarleiðbeiningar svo hægt sé að grípa til þeirra hvenær sem þörf krefur.
Farið eftir leiðbeiningunum í kaflanum LEIÐBEININGAR UM HVERNIG KVEIKT ER UPP Í GRILLINU þegar Það er tekið í notkun.
„Eingöngu til nota utandyra"
„Lesið notkunarleiðbeiningarnar áður en grillið er tekið í notkun"
„VARÚÐ: Aðgengilegir hlutir geta verið mjög heitir. Haldið börnum fjarri"
„Grillið má ekki vera nálægt brennanlegum efnum þegar það er í notkun"
„Færið ekki grillið meðan á notkun stendur"
„Eftir notkun skal skrúfa fyrir gasið á gaskútnum"
Notið grillið aldrei undir þakskyggni.
Ýtið ekki grillum á hjólum yfir óslétt undirlag eða þrep.
Notið hlífðarhanska þegar komið er við heita hluti.
Stillið gasstillihnappinn alltaf á
og skrúfið fyrir gaskútinn eftir notkun.
Gætið þess að gasstillihnappurinn sé á
og skrúfað fyrir gaskútinn þegar skipt er um gaskút. MIKILVÆGT: Grillið má ekki vera nálægt
neinum íkveikjuvöldum.
Athugið alla tengihluti samkvæmt leiðbeiningum í LEKAPRÓFUN þegar búið er að tengja nýjan gaskút við.
Stillið gasstillihnappinn á
og skrúfið fyrir gasið á kútnum ef grunur er um leka vegna óþéttra hluta. Látið skoða hlutina sem leiða gas í
sérverslun með gasvörur.
Ef merki eru um skemmdir eða slit á gasslöngunni verður að skipta um hana strax. Slangan verður að vera laus við brot og sprungur. Ekki
gleyma að slökkva með gasstillihnappinum og skrúfa fyrir gasið áður en slangan er fjarlægð.
Skipta skal um slönguna og gasþrýstijafnarann eftir 3 ára notkun frá kaupdegi. Gætið þess að gasþrýstijafnarinn og slangan samræmist
viðeigandi EN-stöðlum.
Ráðlögð lengd gasslöngunnar er 90 cm og má ekki fara yfir 150 cm.
Gætið þess að loka aldrei fyrir stóra hringlaga loftopið á botni skálarinnar eða loftraufarnar á lokinu. Aldrei má loka fyrir eða hylja loftopin á
geymslustað gaskútsins.
„Ekki má breyta grillinu með neinum hætti". Leitið til fagaðila ef grunur leikur á bilun.
Grillinu fylgir gasslanga og gasþrýstijafnari. Mikilvægt er að halda gasslöngunni frá heitum ytri hlutum grillsins. Ekki má vera snúið upp á
slönguna. Nauðsynlegt er að festa slönguna í þar til gerða festingu á grillum sem hafa slíka festingu.
Slangan og þrýstijafnarinn samræmast gildandi landslögum og EN-stöðlum.
Ef fullum afköstum er ekki náð og grunur er um stíflu í gasstreyminu skal leita til sérverslunar með gasvörur.
Notið grillið aðeins á traustu og öruggu undirlagi. Setjið grillið aldrei á viðargólf eða annað brennanlegt yfirborð meðan það er í notkun. Haldið
grillinu frá brennanlegum efnum.
Ekki má geyma grillið nálægt mjög eldfimum vökvum eða efnum.
Ef grillið er geymt innandyra yfir veturinn verður að fjarlægja gaskútinn. Geyma skal kútinn á vel loftræstum stað utandyra, sem börn hafa ekki
aðgang að.
Komið grillinu fyrir í skjóli fyrir vindi ef hægt er áður en það er notað.
Þegar grillið er ekki í notkun ætti að geyma það undir yfirbreiðslu eftir að það hefur kólnað til að vernda það fyrir umhverfisáhrifum.
Yfirbreiðslur fást hjá söluaðilum.
Til að koma í veg fyrir raka skal fjarlægja yfirbreiðsluna eftir mikla rigningu.
Skiljið grillið aldrei eftir án eftirlits meðan á notkun stendur.
Grillið helst heitt lengi eftir að slökkt er á því. Gætið þess að brenna ykkur ekki og setja enga hluti á grillið, því það skapar eldhættu.
OUTDOORCHEF.COM
169

Publicité

Table des Matières
loading

Produits Connexes pour Outdoorchef LUGANO 570 G EVO

Table des Matières