Chamberlain COMFORT ML 700 Notice De Montage Et De Commande page 269

Masquer les pouces Voir aussi pour COMFORT ML 700:
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 30
1
Almennar öryggisleiðbeiningar
Áður en þú hefst handa við uppsetningu:
Vinsamlegast lestu notkunarleiðbeiningarnar og sérstaklega varúðarráðstafanirnar. Geymdu handbókina svo hægt sé að fletta upp í henni síðar og til að
koma henni áfram til seinni eiganda.
Eftirfarandi tákn er að finna fyrir framan leiðbeiningarnar til að forða líkamstjóni eða eignatjóni. Lesið þessar leiðbeiningar gaumgæfilega.
VIÐVÖRUN
Líkamstjón eða eignatjón
Mikilvægar öryggisupplýsingar
Sjálfvirka hurðaopnunarkerfið hefur verið prófað og hannað fyrir örugga notkun, en öryggi er aðeins tryggt ef farið er nákvæmlega eftir öryggisleiðbeinin-
gunum við uppsetningu og notkun.
- Dyrnar skulu vera jafnvægisstilltar. Það verður að gera við hurðir sem ekki
hreyfast eða eru fastar. Án jafnvægisstillingar eru bílskúrshurðir,
hurðafjaðrir, strengir, diskar, festingar og brautir undir miklu álagi, sem
getur orsakað alvarleg meiðsli. Reynið ekki að losa, hreyfa eða lagfæra
hurðina, heldur hafið samband við þjónustumiðstöð eða hurðasérfræðing.
- Gætið þess að vera ekki með skartgripi, úr eða klæðast víðum fötum við
uppsetningu eða viðhald á hurðaopnara.
- Fjarlægið alla strengi og keðjur sem tengjast hurðinni áður en hurðaop-
narinn er settur upp, til að flækjast ekki í þeim því það getur orsakað
alvarlegt líkamstjón.
- Við uppsetningu og rafmagnstengingar skulu bygginga- og rafmagn-
sreglugerðir virtar. Þessi búnaður uppfyllir verndarflokk 2 og krefst ekki
jarðtengingar.
- Viðeigandi styrkingar skulu notaðar til að forðast skemmdir á mjög léttum
hurðum (eins og úr trefjagleri, áli eða stáli). Til að gera það skal haft
samband við framleiðanda hurðarinnar.
- Sjálfvirka öryggisbakkkerfið ætti að undirgangast prófun. Bílskúrshurðin
VERÐUR að fara til baka við snertingu við 50mm háa hindrun á jörðu. Sé
hurðaopnarinn ekki rétt stilltur getur það leitt af sér alvarlegt líkamstjón
þegar bílskúrshurð lokast. Endurtakið prófið mánaðarlega og gerið allar
nauðsynlegar breytingar.
- Ekki má setja þetta kerfi upp á rökum eða blautum svæðum.
- Við notkun ætti hliðið aldrei, undir nokkrum kringumstæðum, að stífla
almenningsganga.
- Til áminningar fyrir alla notendur um örugga notkun, ætti að festa upp
varúðarmerkingu til verndar börnum, auk upplýsta veggrofans.
Varúðarmer-kingarnar sem vara við hættunni á að festast skulu staðsettar
á vel sýnilegum stöðum.
- Eftirlit skal haft með börnum til að tryggja að þau leiki sér ekki að
búnaðinum.
Byrjið á að lesa þessar mikilvægu öryggisupplýsingar
VARÚÐ!
VIÐVÖRUN
Hætta vegna rafstraums eða spennu
- Ekki er ætlast til að búnaðurinn sé notaður af einstaklingum (þar á meðal
börnum) með skerta líkamsgetu, skynfæragetu eða andlega getu eða
sem hafa ekki til þess reynslu og/eða þekkingu, nema að þeir séu undir
eftirliti einstaklinga sem bera ábyrgð á öryggi þeirra eða hafa hlotið
leiðbeiningar um hvernig búnaðurinn skuli notaður.
- Allar hindranir / læsingar eru afvirkjaðar til að forðast skemmdir á hurðinni.
- Ef nauðsyn krefur, SKAL stjórnbúnaður settur upp þannig að hann sjáist
frá hurðinni og þar sem börn ná ekki til. Börnum ætti ekki að leyfast að
nota hnappana eða fjarstýringar. Misnotkun á hurðaopnaranum getur leitt
til alvarlegra meiðsla.
- Hurðaopnarinn skal AÐEINS notaður ef notandinn getur séð allt svæðið
umhverfis hurðina og sé þess fullviss að engar hindranir séu til staðar og
hurðaopnarinn sé rétt stilltur. Enginn má fara um hurðina á meðan hún
hreyfist. Börnum skal ekki leyft að leika sér nálægt hurðinni.
- Notið handvirkan sleppibúnað aðeins til að skilja sleðann frá drifinu og –
sé það mögulegt – AÐEINS á meðan dyrnar eru lokaðar. Notið rauða
handfangið ekki til að ýta hurðinni upp eða draga hana niður.
- Áður en nokkrar viðgerðir eru framkvæmdar eða hlífar fjarlægðar, skal
taka hurðaopnarann úr sambandi við rafmagnsaflgjafa.
- Þessari vöru fylgir straumbreytir með sérstakri snúru. Komi til skemmda
VERÐUR að endurnýja hann með upphaflegum straumbreyti og það
verður þar til bær tæknimaður að gera.
- Notkun neyðarsleppibúnaðar getur leitt til stjórnlausra hreyfinga hurðarin-
nar, ef fjaðrirnar eru lélegar eða brotnar eða ef hurðin er ekki í jafnvægi.
- Festið sleppihandfang neyðarsleppibúnaðarins í a.m.k. 1,80m hæð.
Geymið þessar leiðbeiningar án undantekninga.
is 01/13

Publicité

Table des Matières
loading

Ce manuel est également adapté pour:

Premium ml 1000Comfort 700 nPremium 1000 n

Table des Matières