Télécharger Imprimer la page

Schellenberg ROLLODRIVE 65 STANDARD Mode D'emploi page 211

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 21
ÖRYGGI OG ÁBENDINGAR
Ágætu viðskiptavinir!
Vinsamlegast lesið leiðbeiningarnar í heild sinni áður en varan er sett
upp og tekin í notkun. Huga skal að öllum öryggisleiðbeiningum áður
en hafist er handa. Geymið þessar leiðbeiningar og bendið öllum
notendum á hættur sem geta skapast í tengslum við vöruna. Þegar eigendaskipti
verða skal láta nýja eigandann fá leiðbeiningarnar. Tjón sem hlýst af óviðeigandi
notkun eða rangri uppsetningu fellir ábyrgðina úr gildi.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Lífshætta stafar af raflosti! Áður en unnið er í rafkerfum verður að taka
strauminn af þeim�
Gerið öryggisráðstafanir svo straumur sé ekki settur á í ógáti. Þetta gildir líka
hvað viðhald og viðgerðir á rafdrifnum gluggahlerabúnaði varðar.
Aðeins fagfólki með tilskilin réttindi er heimilt að annast tengingar við rafmagn.
Röng uppsetning getur leitt til alvarlegra slysa á fólki eða tjóns á hlutum.
Notkun á biluðu tæki getur sett fólk í hættu og valdið skemmdum (raflosti,
skammhlaupi). Notið því aldrei biluð eða skemmd tæki.
Fylgja skal fyrirmælum rafveitu á hverjum stað sem og öllum gildandi stöðlum og
reglum um raflagnir.
Notið vöruna aðeins á þurrum stöðum (hlífðarflokkur IP20).
Varan og umbúðirnar eru ekki leikfang. Haldið frá börnum þar sem hætta er á
slysum eða köfnun.
Vegna slysahættu má ekki opna vöruna�
Ávallt skal vera hægt að komast að rafmagnsinnstungunni og aflgjafanum.
Haldið fólki frá því svæði sem gluggahlerabúnaðurinn hreyfist eftir. Svæðið sem
gluggahlerabúnaðurinn hreyfist eftir verður að vera sýnilegt meðan á notkun
stendur� Slysahætta er fyrir hendi�
Börn eða fólk sem er með skerta andlega getu, skerta líkamsgetu eða skerta
skyngetu og er ekki fært um að nota vöruna á öruggan og varkáran hátt má
ekki nota eða setja upp vöruna. Börn eldri en 8 ára og einstaklingar með skerta
líkamsgetu, skyngetu eða andlega getu og einstaklingar sem ekki hafa reynslu
og/eða þekkingu mega nota vöruna, svo fremi sem þeir eru undir eftirliti aðila
sem gætir öryggis þeirra eða að þeir hafi fengið tilsögn hjá viðkomandi aðila um
örugga notkun tækisins og þeim hafi verið gerð skýr grein fyrir hættunum. Börn
mega ekki annast þrif eða notendaviðhald án eftirlits.
Leyfið ekki börnum að leika með gluggahleradrifið.
211
IS

Publicité

loading

Produits Connexes pour Schellenberg ROLLODRIVE 65 STANDARD