itarus 3M Versaflo TR-302E+ Notice D'utilisation page 42

Unité turbo à ventilation assistée
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 9
i
NOTENDALEIÐBEININGAR
Lesið þessar leiðbeiningar samhliða sérleiðbeiningum með 3M™
Versaflo™ TR-302E+loftdælunni þar sem finna má upplýsingar um:
• Samþykktar samsetningar höfuðstykkja
• Varahluti
• Aukahluti
UMBÚÐIR FJARLÆGÐAR
3M™ Versaflo™ TR-302E+loftdælan ætti að innihalda:
a) loftdælu
b) loftflæðivísi
c) síuhlíf
d) neistavara
e) Notendaleiðbeiningar
f) Sérleiðbeiningar
^ VIÐVÖRUN
Rétt val, þjálfun, notkun og viðeigandi viðhald eru allt nauðsynlegir
þættir til að varan geti varið notandann fyrir tilteknum
aðskotaefnum í lofti. Ef öllum notkunarleiðbeiningum þessarar
öndunarhlífar er ekki fylgt og/eða ef hún er ekki höfð rétt á í heild
sinni allan váhrifatímann getur það haft alvarleg áhrif á heilsufar
notandans og leitt til alvarlegra eða lífshættulegra sjúkdóma eða
varanlegrar fötlunar.
Til að varan henti og sé notuð rétt skal fylgja staðbundnum reglugerðum,
fara eftir öllum upplýsingum sem með henni fylgja eða hafa samband við
öryggissérfræðing/fulltrúa 3M (upplýsingar um tengiliði á staðnum).
^ Veitið viðvörunaryfirlýsingum sérstaka athygli þar sem í þær er
vísað.
KERFISLÝSING
3M™ Versaflo™ TR-302E+loftdælan er hönnuð til notkunar með einu af
samþykktu höfuðstykkjunum (sjá sérleiðbeiningar). Varan uppfyllir kröfur
EN 12941 (öndunarfærahlífar – síur með dælu).
Með loftdælunni er hægt að nota ýmist venjulegar eða afkastamiklar
rafhlöður og fjölbreytt úrval af agnasíum (meðal annars með mismunandi
vörn gegn óþægilegri lykt). Hægt er að stilla loftdæluna handvirkt á
tvenns konar loftflæði (venjulegt eða mikið). Hún er einnig búin
rafstýrieiningu sem gefur frá sér hljóðviðvörun og sjónræna viðvörun ef
rafhlaðan er að tæmast og/eða ef lítið loft flæðir inn í höfuðstykkið.
Dælan er með síuvísi sem veitir upplýsingar um ákomið magn á agnasíu
og rafhlöðuvísi sem veitir upplýsingar um hleðslu rafhlöðunnar.
VIÐURKENNINGAR
Þessar vörur eru gerðarviðurkenndar og skoðaðar árlega af BSI,
Kitemark Court, Davy Avenue, Knowlhill, Milton Keynes, MK5 8PP,
Bretlandi (tilkynntur aðili nr. 86). Þessar vörur eru CE-merktar í samræmi
við kröfur sem settar eru fram í annaðhvort Evróputilskipun 89/686/EBE
eða Evrópureglugerð (ESB) 2016/425. Upplýsingar um gildandi sértæka
löggjöf sem þessar vörur samræmast má finna með því að skoða
vottunina og samræmisyfirlýsinguna sem finna má á eftirfarandi
vefsvæði: www.3m.com/Respiratory/certs
Þessar vörur samræmast Evróputilskipun um rafsegulsviðssamhæfi
2014/30/ESB
TAKMARKANIR Á NOTKUN
Notið þetta öndunarhlífakerfi eingöngu í samræmi við allar leiðbeiningar:
• • sem er að finna í þessum bæklingi
• • sem fylgja öðrum íhlutum kerfisins. (t.d. sérleiðbeiningar með
TR-302E+ loftdælu, notendaleiðbeiningar með höfuðstykki).
Notið ekki í meiri styrkleika aðskotaefna en tilgreint er í
notendaleiðbeiningunum með höfuðstykkinu.
Notið ekki sem öndunarhlíf gagnvart óþekktum aðskotaefnum í lofti eða
þegar styrkur aðskotaefna er óþekktur eða umsvifalaust hættulegur lífi
eða heilsu (IDLH).
Notið ekki í andrúmslofti þar sem súrefnisinnihald er minna en 19,5%.
(Skilgreining frá 3M. Í hverju landi fyrir sig kunna að vera í gildi aðrar
takmarkanir hvað varðar súrefnisskort. Leitið ráða ef vafi leikur á
málum).
Notið þessar vörur ekki í súrefni eða súrefnisauðguðu andrúmslofti.
Notið aðeins með höfuðstykkjum og varahlutum/fylgihlutum sem talin eru
upp í sérleiðbeiningum og innan þeirra notkunarskilyrða sem fram koma
í tækniforskriftinni.
Notist aðeins af þjálfuðu og hæfu starfsfólki.
Yfirgefið mengaða svæðið umsvifalaust ef:
a) Einhver hluti kerfisins skemmist,
b) Loftflæði inn í höfuðstykkið minnkar eða stöðvast.
c) viðvaranir um lítið loftflæði eða litla hleðslu á rafhlöðu verða virkar.
d) Erfitt verður að anda,
e) Vart verður við svima eða önnur óþægindi,
f) Vart verður við lykt eða bragð af aðskotaefnum eða ertingu.
Ekki má breyta þessari vöru. Notið aðeins upprunalega varahluti frá 3M
við viðgerðir.
^ Notið þessar vörur ekki í eldfimu andrúmslofti eða á
sprengihættustöðum.
Nota skal neistavara við allar aðstæður þar sem loftdælan kann að
komast í snertingu við neista, bráðið málmefni eða aðrar heitar
efnisagnir.
Hafið samband við tækniþjónustu 3M vegna notkunar í sterku segulsviði.
Efni sem geta komist í snertingu við húð notenda munu ekki valda
ofnæmisviðbrögðum nema hjá minnihluta notenda.
Varan inniheldur ekki íhluti sem gerðir eru úr náttúrulegu gúmmílatexi.
MERKINGAR Á BÚNAÐI
Upplýsingar um merkingar á höfuðstykkinu eru í notendaleiðbeiningum
með höfuðstykki.
Upplýsingar um merkingar á síum eru í notendaleiðbeiningum fyrir síur.
TR-302E+ loftdæla er merkt með EN 12941. TR-302E+ loftdæla er
merkt með framleiðsludagsetningu (mánuður/ár).
Umbúðirnar henta ekki fyrir vöru sem er ætluð til neyslu.
K
samræmi við staðbundnar reglugerðir. Staðlaðar rafhlöður og rafhlöður
með mikilli afkastagetu, sem nota á með loftdælunni, eru merktar með
EN 12941. Rafhlöður eru merkar með framleiðsludagsetningu
(ár/vika/gerð rafhlöðu) t.d. 09/10/1, sem táknar 2009, 10. vika,
rafhlöðugerð 1.
Öðrum viðvörunarmerkingum er lýst hér að neðan:
Tákn
Skilgreining
Varan má ekki
snertingu við vatn
UNDIRBÚNINGUR FYRIR NOTKUN
Respirator systems are intended to help reduce exposures to certain
contaminants and should always be handled with care and fully
inspected prior to use.
Gangið úr skugga um að búnaðurinn sé heill, óskaddaður og rétt settur
saman. Ef einhverjir hlutar hans reynast skemmdir eða gallaðir verður að
endurnýja þá með upprunalegum 3M-varahlutum fyrir notkun.
Framkvæmið skoðun á höfuðstykkissamstæðunni fyrir hverja notkun,
eins og lýst er í viðeigandi notendaleiðbeiningum.
Veljið belti af samþykktri gerð og festið það við loftdæluna.
Rafhlaða
Veljið rafhlöðu af samþykktri gerð. (Sjá lista yfir samþykktar
rafhlöðugerðir fyrir 3M í sérleiðbeiningum með TR-302E+ loftdælu).
Skoðið rafhlöðuhólfið, lamirnar, krækjuna og rafskautapinnana á
rafhlöðunni og skiptið um rafhlöðu ef eitthvað af þessu er skemmt.
Rafhlöðuna ætti að hlaða strax eftir móttöku eins og lýst er á umbúðum
vörunnar (sjá mynd 1).
Leiðbeiningar um rafhlöðuskipti eru í notendaleiðbeiningunum sem fylgja
rafhlöðuhleðslusettinu.
Rafhlöðuhleðslan birtist þegar ýtt er á rafhlöðuvísinn, eins og sýnt er á
mynd 2. (1 stika = minna en 20%, 5 stikur = 80 til 100%).
Samskonar rafhlöðuvísir er einnig á skjá loftdælunnar.
Setjið rafhlöðuna í eins og sýnt er á mynd 3. Krækjan ætti að falla á sinn
stað með smelli. Togið varlega í rafhlöðupakkann til að ganga úr skugga
um að hann hafi smollið á sinn stað.
Síur
Veldu síu af samþykktri gerð. (Sjá lista yfir samþykktar síur fyrir 3M í
sérleiðbeiningum með TR-302E+ loftdælu).
^ Skoðið síuna áður en hún er sett upp í fyrsta sinn eða sett upp aftur
og skiptið henni út tafarlaust ef hún er skemmd.
Fjarlægið síuhlífina með því að þrýsta á krækjuna á loftdælunni og lyfta
hlífinni af eins og sýnt er á mynd 4. Setjið síurnar og forsíurnar
(valmöguleiki) og/eða neistavarann undir síuhlífina eins og sýnt er á
mynd 5(þar sem 1 = síuhlíf; 2 = neistavari; 3 = forsía og 4 = sía).
Merkimiðinn á síunni ætti að vera sýnilegur í glugganum á síuhlífinni.
Nota skal neistavara við allar aðstæður þar sem loftdælan kann að
komast í snertingu við neista, bráðið málmefni eða aðrar heitar
efnisagnir.
^ Setjið síuna alltaf upp í loftdælunni með réttum hætti.
Setjið síuhlífina aftur upp á loftdæluna og gangið úr skugga um að
krækjan smelli tryggilega á sinn stað.
Prófun á loftflæði
Loftdælan er forkvörðuð til að tryggja að nauðsynlegt loftflæði sé
ævinlega til staðar. Hún bætir einnig upp breytingar í þéttleika loftsins
sem getur breyst við hækkun (hæð yfir sjávarmáli) og breytingar á
lofthita. Framkvæmið prófun á loftflæði fyrir notkun með því að nota
loftflæðisvísi með slöngu eins og sýnt er á mynd 6. Látið loftdæluna
ganga í 1 mínútu og stingið svo prófunarslöngunni inn í úttakið. Bíðið í
eina mínútu í viðbót og leyfið loftflæðinu að ná jafnvægi. Setjið
prófunarslönguna í lóðrétta stöðu, gangið úr skugga um að neðri hluti
flotholtsins hvíli á, eða fyrir ofan, markið fyrir lágmarksflæði fyrir
41
Fargið í
J
komast í
vera nærri eldi geymast við hærra
eða lægra hitastig en
ráðlagt er

Publicité

Table des Matières
loading

Produits Connexes pour itarus 3M Versaflo TR-302E+

Table des Matières