LiftMaster LM60EVF Notice De Montage page 261

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 30
Ábendingar:
- Ef ljóshliðið var rofið verður biðtíminn færður aftur til baka
(hefst frá byrjun).
- Sjálfvirk lokun virkar ekki í stöðunni fyrir aukastöðvun.
- Til þess að hægt sé að gera sjálfvirka lokun virka þarf bílskúrshurð-
aopnarinn að vera kominn í opnu endastöðuna.
Úrræðaleit:
Vandamál: Hurðaopnarinn virkar ekki án ljóshliðs.
Lausn: Engin bilun. Rétt. Hjá þessu verður ekki komist um leið og
ljóshliðið hefur verið tengt.
E.
Skipt á milli hraðrar og hægrar hraðastillingar
Lýsing á virkni:
Hurðaopnarinn velur sjálfkrafa nauðsynlegan hraða.
Skipt um hraða:
1. Færið hurðina í lokuðu endastöðuna.
2. Ýtið samtímis á UPP- og NIÐUR-hnappana þar til ljósið á hurðaop-
naranum blikkar.
Varúð: Af öryggisástæðum er hraðastillingin hægari á hurðum með
styttri brautarlengd en 190 cm. Heilar hurðir, lyftihurðir og allar gerðir
hurða sem opnast út á við má aðeins hreyfa í hægri hraðastillingu.
F.
Hnappar á fjarstýringu tengdir við OPNA, STÖÐVA eða LOKA
Lýsing á virkni:
Hægt er að nota hvaða hnapp sem er á fjarstýringunni fyrir aðger-
ðirnar OPNA, STÖÐVA eða LOKA.
OPNA: Ýtið samtímis á gula samstillingarhnappinn og OPNA-hnappinn
þar til LED-ljósið kviknar. Ýtið því næst á hnappinn sem óskað er eftir
að stýri aðgerðinni OPNA og bíðið eftir að ljósið á opnaranum blikki.
STÖÐVA: Ýtið samtímis á gula samstillingarhnappinn og rétthyrnda
stillingar-hnappinn þar til LED-ljósið kviknar. Ýtið því næst á hnappinn
á fjarstýringunni sem óskað er eftir að stýri aðgerðinni STÖÐVA og
bíðið eftir að ljósið á opnaranum blikki.
LOKA: Ýtið samtímis á gula samstillingarhnappinn og NIÐUR-
hnappinn þar til LED-ljósið kviknar. Ýtið því næst á hnappinn á
fjarstýringunni sem óskað er eftir að stýri aðgerðinni LOKA og bíðið
eftir að ljósið á opnaranum blikki.
G.
Stilling fyrir fríið (aðeins með 78EV veggeiningu):
Þegar þessi stilling er virk er ekki hægt að hreyfa hurðina með
fjarstýringu.
H.
Stilling á fjarstýringu með veggeiningu
(aðeins með 78EV veggeiningu).
I.
Kveikt og slökkt á ljósi hurðaopnarans
(aðeins með 78EV veggeiningu):
Hægt er að kveikja og slökkva á ljósi hurðaopnarans hvenær sem er.
Sjálfvirk lýsing (aðeins með ljóshliði og veggeiningu)
Ef hurðin er opin og farið er fyrir ljósgeislann kviknar sjálfkrafa á
ljósinu.
Sett á: Haldið „LIGHT"-hnappinum á veggeiningunni inni í 10
sekúndur.
Tekið af: Sjá „Sett á"
J.
Þráðlaust, lyklalaust aðgangskerfi
(aðeins með 747EV þráðlausri kóðalæsingu):
Veljið persónulegan 4 stafa talnakóða fyrir notkun hurðarinnar.
K.
Tímabundinn aðgangur
(aðeins með 747EV þráðlausri kóðalæsingu):
Hægt er að stilla inn tímabundinn kóða fyrir takmarkaðan aðgang að
bílskúrnum (annaðhvort með tímatakmörkun eða takmörkuðum fjölda
opnunaraðgerða).
L.
Lokun með einum hnappi
(aðeins með 747EV þráðlausri kóðalæsingu):
Hægt er að loka hurðinni án aðgangskóða í hvaða stöðu sem er (ekki
hægt að opna).
M.
myQ ( aðeins með 828EV netgáttinni (Gateway):
Gerir kleift að stjórna bílskúrshurðinni í gegnum internetið eða
samhæfða farsíma.
N.
Bílskúrshurðaskynjari
(aðeins með 829EV bílskúrshurðaskynjara):
Getur gefið frá sér sýnileg merki (með LED-ljósum) og hljóðmerki þegar
fylgst er með stöðu hurðar. Einnig er hægt að nota tækið til að loka
hurðinni.
O.
Straumur til ytri tækja (30 volta klemma)
30 V DC/hám. 50 mA
Athugið: Fyrir ytri (fjölnota) móttakara verður að stilla af biðstöðu fyrir
minna en 1 W.
P.
Stillt af/á biðstöðu fyrir minna en 1 W
Þegar búnaðurinn kemur frá verksmiðju er alltaf stillt á biðstöðu
fyrir minna en 1 W. (Eftir að slokknar á ljósi og bílskúrshurð hefur verið
lokað.) Stillt af biðstöðu fyrir minna en 1 W:
1. Takið tækið úr sambandi við rafmagn.
2. Haldið UPP- og NIÐUR-hnöppunum á bakhlið stilliborðsins báðum
inni í einu.
3. Tengið tækið aftur við rafmagn á meðan hnöppunum er haldið inni.
4. Eftir u.þ.b. 5 sekúndur blikkar ljós hurðaopnarans 10x til staðfestin-
gar. Athugið: Í hvert sinn sem hurðaopnarinn er settur aftur í sam-
band við rafmagn blikkar ljósið á honum 10x til að gefa til kynna að
stillt hafi verið af biðstöðu fyrir minna en 1 W. Stillt á biðstöðu
fyrir minna en 1 W: Sjá „Sett á"
Q.
Teljari fyrir aðgerðalotur
Hægt er að láta opnarann sýna hversu margar aðgerðalotur hafa verið
framkvæmdar (opna–loka = 1).
1. Takið tækið úr sambandi við rafmagn.
2. Haldið hringlaga og ferhyrnda hnappinum á bakhlið opnarans báðum
inni í einu.
3. Tengið tækið aftur við rafmagn á meðan hnöppunum er haldið inni.
4. Eftir u.þ.b. 5 sekúndur byrjar ljósdíóðan að blikka. Ljósdíóðan blikkar
1x fyrir hverjar 1.000 aðgerðalotur. Að því loknu skal sleppa
hnöppunum.
is 07/13

Publicité

Table des Matières
loading

Ce manuel est également adapté pour:

Lm80evfLm100evfLm130evfLm60Lm80Lm100

Table des Matières