Outdoorchef GENEVA 570 G Mode D'emploi page 92

Masquer les pouces Voir aussi pour GENEVA 570 G:
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 23
VIÐHALD
Reglubundið viðhald grillsins tryggir rétta virkni.
Athugið alla hluta sem leiða gas að minnsta kosti tvisvar á ári og í hvert sinn eftir langan tíma í geymslu. Kóngulær og önnur skordýr geta
valdið stíflum sem verður að lagfæra fyrir notkun.
Ef grillið er oft dregið yfir ójöfnur skal kanna af og til hvort allar skrúfur eru fastar.
Ef grillið er ekki notað í lengri tíma skal framkvæma LEKAPRÓFUN áður en það er tekið í notkun á ný. Ef spurningar vakna skal snúa sér til
umboðsaðila gassins eða sölustaðar.
Til að forðast skemmdir vegna tæringar skal smyrja alla málmhluta með olíu áður en grillið er sett í geymslu í lengri tíma.
Eftir langan geymslutíma og a.m.k. einu sinni á grilltímabilinu skal athuga gasslönguna með tilliti til sprungna, brota og annarra skemmda.
Skiptið strax um skemmda gasslöngu eins og lýst er í kaflanum ÖRYGGISUPPLÝSINGAR.
Berið viðarolíu á alla viðarhluta einu sinni á ári – það vinnur gegn sprungumyndun.
Hlífið grillinu fyrir umhverfisáhrifum með hentugri yfirbreiðslu frá OUTDOORCHEF sem sett er á eftir að grillið hefur kólnað að fullu.
Til að koma í veg fyrir raka skal fjarlægja yfirbreiðsluna eftir rigningu. Yfirbreiðslur fást hjá söluaðilum.
GERT VIÐ BILUN
Það kviknar ekki á brennaranum:
Athugið hvort opið er fyrir gasstreymið á kútnum.
Gangið úr skugga um að nóg gas sé á kútnum.
Athugið hvort neistar frá rafskautinu hlaupa yfir í brennarann.
Enginn neisti:
Gangið úr skugga um að rafhlaðan hafi verið sett rétt í (á grillum með rafkveikingu).
Fjarlægðin milli brennara og rafskauts má ekki vera meiri en 5–8 mm.
Athugið hvort snúrur í rafkveikingu og rafskauti eru vel festar.
Setjið nýja rafhlöðu (gerð AAA, LR03, 1,5 volt) í rafkveikinguna (á grillum með rafkveikingu).
Ef ekki tekst að koma grillinu í gang með framangreindum úrræðum skal hafa samband við sölustað.
NOTENDAÁBYRGÐ
1. Ábyrgð og tenging við önnur réttindi kaupanda
Með kaupum á þessari OUTDOORCHEF vöru hjá viðurkenndum söluaðila færð þú sem kaupandi (notandi) hennar afhenta ábyrgð
framleiðandans Outdoorchef AG („OC").
Ábyrgð framleiðanda gefur þér færi á að leggja fram kröfur á hendur ábyrgðarveitanda í samræmi við ákvæði þessa samnings. Ábyrgðarkröfur
gilda, auk annarra samningsbundinna eða lagalegra réttinda þinna. Þessi ábyrgð útilokar ekki eða takmarkar önnur réttindi. Þar af leiðandi getur
þú einnig lagt fram aðrar samningsbundnar eða lagalegar kröfur á hendur viðkomandi ábyrgðaraðilum hverju sinni. Þannig hefur þessi ábyrgð til
dæmis ekki áhrif á kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt lögum um skaðsemisábyrgð.
Sem kaupandi hefurðu einnig sérstakan möguleika á að leggja fram samningsbundnar ábyrgðarkröfur gagnvart seljandanum. Þá er til dæmis
hægt að rifta kaupsamningnum aðeins gagnvart seljandanum en ekki gagnvart OC innan ramma þessarar ábyrgðar.
2. Samningsaðilar og ábyrgðarskilmálar
Ábyrgðarveitandi er OC. Rétt á ábyrgð eiga allir kaupendur sem kaupa nýja vöru til einkanota í viðurkenndri verslun. Leggja skal fram sölukvittun
til sönnunar á kaupum. Kaup til einkanota eru þegar varan er keypt af einstaklingi yfirleitt í þeim tilgangi að nota hana án þess að það sé í
atvinnuskyni eða í tengslum við sjálfstæðan atvinnurekstur.
Ef nýta á ábyrgðina verður að leggja fram ábyrgðarkröfuna fyrir ábyrgðarveitanda innan tveggja mánaða frá því ágalli kemur í ljós. Að öðrum kosti
er ekki hægt að leggja fram ábyrgðarkröfur. Ef um augljósa galla er að ræða hefst fresturinn við móttöku vörunnar. OC mælir með því að skoða
vöruna vegna galla strax við móttöku.
3. Gildissvið
Ábyrgðin gildir frá kaupdegi og er veitt í eftirfarandi tilvikum, að því tilskildu að engin útilokun sé til staðar samkvæmt 4. tölulið:
3 ár fyrir gegnumryð á gljábrenndu kúlunni (neðri hluti og lok).
3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn á gljábrenndu grillgrindinni.
3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn á öllum hlutum úr ryðfríu stáli.
Galli í emaleringu fyrir fyrstu notkun.
2 ár fyrir alla aðra framleiðslu-/efnisgalla.
92
OUTDOORCHEF.COM

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières