Télécharger Imprimer la page

Electrolux ENV9MD18S Notice D'utilisation page 123

Réfrigérateur/congélateur

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

• Flöskur: Loka með loki og setja í
flöskuhilluna í hurðinni, eða (ef til
staðar) í flöskurekkann.
7. UMHIRÐA OG HREINSUN
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um öryggismál.
7.1 Innra byrði hreinsað
Áður en heimilistækið er notað í fyrsta
sinn, skal þvo innri og alla innri fylgihluti
með volgu vatni og hlutlausri sápu til að
losna við dæmigerða lykt af nýrri vöru og
þurrka svo vandlega.
VARÚÐ!
Ekki nota þvottaefni,
slípiduft, klór eða
olíublönduð hreinsiefni, þar
sem það skemmir áferðina.
VARÚÐ!
Aukahlutir og hlutar
heimilistækisins eru ekki
ætlaðir fyrir uppþvottavélar.
VARÚÐ!
Hreinsaðu stjórnborðið með
rökum klút. Ekki nota neitt
þvottaefni. Eftir að hreinsun
er lokið skaltu þurrka
stjórnborðið með mjúkum
klút.
7.2 Reglubundin hreinsun
Hreinsa þarf búnaðinn reglulega:
1. Hreinsaðu innra byrðið og aukahluti
með volgu vatni og hlutlausri sápu.
2. Skoðaðu hurðarþéttingar reglulega
og strjúktu af þeim svo þær séu
hreinar og lausar við óhreinindi.
3. Skolaðu og þurrkaðu vandlega.
7.3 Ísskápurinn affrystur
Þíðing kælihólfsins er sjálfvirk. Vatnið
sem þéttist rennur inn í móttakara á
þjöppunni og gufar upp. Ekki er hægt að
fjarlægja móttakarann.
• Skoðaðu alltaf „best fyrir" dagsetningu
varanna til að vita hversu lengi á að
geyma þær.
7.4 Affrysting frystisins
Frystihólfið er hrímlaust. Það þýðir að
ekkert hrím safnast upp þegar það er í
notkun, hvorki á innri veggjum né á
matvælunum.
7.5 Að setja upp og skipta um
CleanAir+ síuna
CleanAir+ sían er virk kolefnissía sem
dregur í sig slæma lykt og gerir það að
verkum að hægt er að viðhalda besta
bragði og lykt matvæla án þess að hætta
sé á víxlmengun á óþef.
Meðhöndlaðu loftsíuna af
varkárni til að forðast að
yfirborð hennar rispist.
Við afhendingu er
kolefnissían í plastpoka til að
viðhalda frammistöðu
hennar.
Settu loftsíuna upp áður en heimilistækið
er virkjað.
1. Taktu loftsíuna úr plastpokanum.
2. Opnaðu plasthólfið og settu hrjúft
yfirborðið á grindina og komdu síunni
fyrir á merktu svæði á grófu
yfirborðinu.
3. Haltu síunni niðri á meðan
plasthólfinu er lokað þar til þú heyrir
smell.
ÍSLENSKA
123

Publicité

loading