Widex TV PLAY Mode D'emploi page 121

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 35
TÆKIÐ NOTAÐ
Tækið notað með appinu – sjá skýringarmynd 7
Hægt er að nota tækið með forritinu eftir að það hefur verið parað við heyrnartækin.
Til að byrja að hlusta á sjónvarpið skaltu gera eftirfarandi:
1. Byrjaðu á að athuga hvort heyrnartækin hafi verið pöruð við símann.
2. Opnaðu forritið og veldu hlustunarkerfi fyrir sjónvarp. Þú heyrirðu hljóðið úr sjón-
varpinu.
3. Til að hætta að hlusta á hljóð úr sjónvarpinu skiptirðu einfaldlega yfir í annað
hlustunarkerfi.
Í fyrsta skipti sem þú notar forritið eftir að hafa parað heyrnartækin og tækið birtist
hjálpartexta á skjánum sem segir þér að TV PLAY-kerfinu hafi verið bætt við kerfin þín.
Þessi skilaboð munu hverfa um leið og þú ýtir einhvers staðar á skjáinn.
Ef þú sérð ekki táknið fyrir TV PLAY í forritinu hafa tækið og heyrnartækin ekki verið pöruð
á réttan hátt.
Tækið notað án þess að nota appið
Þegar heyrnartækin eru pöruð við tækið er sjónvarpskerfi sjálfkrafa bætt við í heyrn-
artækjunum. Til að streyma sjónvarpshljóði í gegnum sjónvarpskerfið án þess að nota
appið þarf að fletta í gegnum kerfin á heyrnartækjunum þínum með því að nota kerf-
ishnappinn eða RC-DEX og finna sjónvarpskerfið.
Stilling hljóðstyrk í sjónvarpi
Þú getur auðveldlega stillt hljóðstyrk í sjónvarpi eða heyrnartækjum með því að nota
hljóðstyrkssleðana á forritsskjánum. Þegar appið er ekki notað er hægt að stilla hljóð-
styrk fyrir sjónvarp með því að nota hljóðstyrkshnappana á RC-DEX.
Ef þú vilt einbeita þér að hljóðinu í sjónvarpinu og ekki heyra umhverfishljóð getur þú not-
að eiginleikann Room off (engin umhverfishljóð) í forritinu.
Símtöl þegar tækið er í notkun
Ef þú ert með iPhone eða Android síma með beinu streymi skaltu bara svara símtölum
á innleið á sama hátt og þú gerir vanalega í símanum.
Ef símtalinu er ekki streymt í heyrnartækin þín skaltu prófa að skipta yfir í annað hlustunar-
kerfi í forritinu.
121

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières