3M PELTOR Tactical XP MT1H7 2 Serie Mode D'emploi page 62

Masquer les pouces Voir aussi pour PELTOR Tactical XP MT1H7 2 Serie:
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 43
ATHUGASEMD
• Þegar heyrnarhlífarnar eru notaðar í samræmi við
leiðbeiningar notenda, draga þær bæði úr stöðugum
hávaða, svo sem í iðnaði eða frá ökutækjum og flugvélum,
og skyndilegum hávaða, til dæmis byssuskotum. Erfitt er
að segja fyrir um þá heyrnarvernd sem þörf er á eða í raun
er veitt hvað varðar váhrif af skyndilegum hávaða. Það
hefur áhrif á vernd gegn hávaða frá byssuskotum um hvaða
tegund vopns er að ræða, hve mörgum skotum er hleypt
af, hvaða heyrnarhlífar eru valdar, hvernig þær passa og
eru notaðar, hvernig um þær er annast og fleira. Kynntu þér
betur heyrnarvernd gegn skyndilegum hávaða á vefsíðunni
www.3M.com/hearing.
• Heyrnartólin eru búin styrkstýrðri hljóðdeyfingu. Notandi
ætti að kynna sér rétta notkun þeirra áður en hún hefst. Ef
hljóð er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita
ráða hjá framleiðanda um viðhald og hvernig skipta á um
rafhlöðu.
• Á heyrnarhlífunum er innstunga fyrir hljóðtæki. Notandi
ætti að kynna sér rétta notkun þeirra áður en hún hefst. Ef
hljóð er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita
lausna í handbók framleiðanda.
• Hitastig við notkun: -20 °C (-4 °F) til 55 °C (131 °F)
• Hitastig við geymslu: -20 °C (-4 °F) til 55 °C (131 °F)
• Þyngd heyrnarhlífanna: MT1H7F2* = 411 g, MT1H7B2* =
370 g, MT1H7P3*2* = 406 g.
VOTTANIR
3M Svenska AB lýsir því hér með yfir að PPE-gerðar
heyrnartólin eru í samræmi við kröfur samkvæmt reglugerð
(ESB) 2016/425 eða tilskipun sambandsins 89/686/EEC
og aðrar viðeigandi tilskipanir til að uppfylla kröfur vegna
CE-merkingar.
Hægt er að fá upplýsingar um viðeigandi löggjöf með því að
sækja samræmisyfirlýsingu (DoC) á www.3M.com/peltor/doc.
Samræmisyfirlýsingin sýnir einnig ef aðrar gerðarvottanir
gilda um þau. Þegar samræmisyfirlýsing er sótt, finndu
vinsamlegast hlutanúmer þitt. Þú finnur hlutanúmer
eyrnahlífanna neðst á annarri skálinni. Dæmi um það má
sjá á myndinni hér að neðan. Hægt er að fá send afrit af
samræmisyfirlýsingu og viðbótarupplýsingum sem krafist
er í tilskipununum með því að hafa samband við 3M í því
landi sem varan var keypt. Upplýsingar um tengiliði má
finna aftast í þessum notendaleiðbeiningum.
Varan hefur verið prófuð og vottuð í samræmi við
EN 352-1:2002/EN 352-3:2002, EN 352-4/A1:2005 og
EN 352-6:2002.
Þessar PPE-vörur eru endurskoðaðar árlega (séu þær í flokki
III) og gerðarvottaðar af Finnish Institute of Occupational
Health, vottunarstofnun nr. 0403, Topeliuksenkatu 41 b,
FI-00250 Helsinki, Finnlandi.
Varan inniheldur bæði rafeinda- og rafmagnsbúnað og
því má ekki farga henni með venjulegu sorpi. Kynntu
þér vinsamlegast reglur á hverjum stað um förgun rafeinda- og
rafmagnsbúnaðar.
HLJÓÐDEYFING Í RANNSÓKNARSTOFU
SNR-hljóðdeyfigildi var fundið þegar slökkt var á tækinu.
Útskýringar á töflu yfir deyfigildi:
Evrópustaðall EN 352
Rannsóknir benda til þess að hjá mörgum notendum sé
hljóðeinangrun minni en hljóðdeyfingartöflur á umbúðum
gefa til kynna vegna frávika við að fella hlífarnar að hverjum
notanda fyrir sig og færni hans og hvatningu til þess. Kynntu
þér viðeigandi reglur um leiðbeiningar um aðlögun gilda
á merkimiða og mat á hljóðdeyfingu. 3M mælir auk þess
eindregið með því að kanna hvort heyrnarhlífar passa.
A:1 Tíðni (Hz)
A:2 Meðal hljóðdeyfing (dB)
A:3 Staðalfrávik (dB)
A:4 Ætlað verndargildi, APV (dB)
A:5
H = Mat á heyrnarvernd vegna hátíðnihljóða (ƒ ≥ 2.000 Hz).
M = Mat á heyrnarvernd vegna millitíðnihljóða
(500 Hz < ƒ < 2.000 Hz).
L = Mat á heyrnarvernd vegna lágtíðnihljóða (ƒ ≤ 500 Hz).
A:6 Viðmiðunarstig
H = Viðmiðsstyrkur fyrir hátíðnihljóð
M = Viðmiðsstyrkur fyrir millitíðnihljóð
L = Viðmiðsstyrkur fyrir lágtíðnihljóð
A:6 Útskýring á töflu yfir rafrænan ílagsstyrk hljóðs (bara
heyrnartól)
1. Gerðarheiti
2. Hljóðmerki inn: hamur 1-3, 0 = slökkt á tæki
3. Styrkur hljóðmerkis inn: N = Eðlilegt, H = Hátt,
0 = slökkt á tækinu.
4. Styrkur hljóðmerkis inn U (mV, RMS)
5. Meðalstyrkur hljóðþrýstings, dB(A)
6. Staðalfrávik hljóðþrýstings, (dB)
7. Styrkur hljóðs inn þar sem meðaltalið plús eitt staðalfrávik
jafngildir 82 dB(A).
Bilanatraust stilling þar sem líka er hægt að heyra ílagshljóð
í stillingunni off (af), einungis í boði á *-50 gerðunum.
A:7 Útskýringar á töflu um viðmiðunarstig
Viðmiðsstyrkur er styrkur hljóðþrýstings hávaðasams
umhverfis í dB(A) sem skilar virkum 85 dB(A) styrk í eyrað
með heyrnarhlífar í notkun. Viðmiðsstyrkir eru þrír og
skilgreindir á grundvelli tíðni hljóðsins.
1. Gerðarheiti.
H = Viðmiðsstyrkur fyrir hátíðnihljóð
M = Viðmiðsstyrkur fyrir millitíðnihljóð
L = Viðmiðsstyrkur fyrir lágtíðnihljóð
Samrýmanlegir öryggishjálmar fyrir atvinnumenn
Einungis ætti að festa þessar eyrnahlífar á og nota með þeim
öryggishjálmum fyrir atvinnumenn sem tilgreindir eru í töflu C.
Eyrnahlífarnar voru prófaðar ásamt eftirfarandi öryggishjálmum
og gætu veitt öðruvísi vernd með öðrum tegundum hjálma.
54
IS

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières