Hällde SB-4L Mode D'emploi page 27

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 12
Fjarlægið fyrst könnuna (3I) (látið hnífabúnað
sitja áfram í könnunni), lokið (3E) og
olíudreypinn (3G) og þvoið þessa hluta í
uppþvottavél.
Ef handþvegið er, látið þá vélina fyrst ganga
með heitu vatni og uppþvottaefni í könnunni.
Takið síðan vélina úr sambandi og skolið
vélarhúsið ofan frá eða þurrkið af því með
votri tusku.
ATHUGIÐ VIKULEGA
Gangið úr skugga um að hnífabúnaður (3J)
hætti að snúast innan 4 sekúndna eftir að
loki/lokfestingu hefur verið lyft.
Festið könnuna (3I) og lokið (sjá liðinn
"SAMSETNING"). Fellið niður lokið/
lokfestinguna. Gangsetjið vélina. Opnið
lokið/lokfestinguna hægt og gangið úr
skugga um að vélin stöðvist áður en opið
milli könnubrúnar og loks er orðið stærra en
30 mm.
Fjarlægið könnuna og lokið. Fellið
lokfestinguna inn í neðri smellistöðu sína.
Snúið hraðastilli (2D) í stöðu "2" og gangið
úr skugga um að vélin fari ekki í gang.
Takið vélina úr sambandi og gangið síðan
úr skugga um að snúran sé heil og
ósprungin.
Ef rafmagnssnúran er ekki heil eða sprungur
eru í henni eða ef einhverjum af fyrrnefndum
öryggisþáttum er ábótavant ber að kalla til
viðgerðarmann áður en vélin er tekin í
notkun.
Gangið úr skugga um að skrúfur aftan á og
undir vélinni séu vel festar og einnig róin í
könnubotninum.
Gangið úr skugga um að hnífabúnaður (3J)
sé heill og bíti vel.
BILANALEIT
BILUN: Vélin fer ekki í gang eða stöðvast í
vinnslu og fer ekki aftur í gang.
VIÐBRÖGÐ: Gangið úr skugga um að
tengillinn sitji í innstungunni. Festið könnuna
(3I) rétt. Fellið lokið í lokfestinguna og
leggið lokið niður þannig að það falli yfir
könnuna. Gangið úr skugga um að
bræðivör í töfluskáp á staðnum séu heil og
hafi rétta amper-tölu. Snúið hraðastilli á "0"
og bíðið nokkrar mínútur og reynið síðan að
gangsetja vélina að nýju. Ef allt kemur fyrir
ekki, kallið til viðgerðarmann.
BILUN: Léleg vinnsla eða ófullnægjandi
afköst.
VIÐBRÖGÐ: Gangið úr skugga um að
hnífar (3J) séu heilir og vel beittir. Sjáið
ennfremur liðinn "ALMENN RÁÐ FYRIR
FLJÓTAN OG GÓÐAN ÁRANGUR".
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
UM SB-4
NOTKUN VÉLARINNAR: Blandar, þeytir,
hrærir, hakkar, stappar. Útbýr kryddlög,
jurtaolíur, sósur, deig, jafninga, majones,
súpur, kryddsmjör, ábætisrétti, ávaxtadrykki,
kokkteila, mjólkurhristinga o.fl.
NOTENDUR: Veitingahús, barir,
sérfæðiseldhús, heilsuhæli, sjúkrahús, skólar,
skyndibitastaðir, veitingaeldhús o.s.frv.
KANNA: Könnuna ásamt loki og
hnífabúnaði má þvo í uppþvottavél. Rými:
4 lítrar. Mælimerkingar: 0.5-3.8 lítrar, 10-
140 únsur, 2-16 bollar. Olíudreypir: rúmtak
1 dl.
VÉL: Mótor, 1. valkostur: 1000W, 220-
240V, 1-fasa, 50/60 Hz. Bræðivör í
töfluskáp á staðnum: 10A, treg. Mótor, 2.
valkostur: 1000W, 1 10-120V, l-fasa, 50/
60 Hz. Bræðivör í töfluskáp á staðnum: 10
A, treg. Hitastýrð hreyfilvörn með sjálfvirkri
endurstillingu. Hraðaskipting: tannhjólsreim.
Öryggiskerfi: Vélrænn öryggisrofi.
Varnarflokkur: IP44. Hljóðstyrkur LpA (EN
31201): < 88dBA.
HRAÐASTILLINGAR: Hraðastillir fyrir
samfellda breytilega hraðastillingu frá 700
til 15 000 snún./mín. Rafræn
snúningshraðastilling fyrir stöðugan
snúningshraða án tillits til álags. Sérstök
snögg hraðastilling (SPF) sem eykur
hraðann beint frá forstilltum hraða upp í 15
000 snún./mín.
EFNI: Vélarhús: álblendi. Kanna og
olíudreypir: högg- og hitaþolið polysulfon.
Lok: Högghelt polypropen. Hnífar í
hnífabúnaði: Hnífastál af hæsta gæðaflokki.
Öxull og kúlulega í hnífabúnaði: ryðfrítt stál.
Könnu ásamt hnífabúnaði, loki og olíudreypi
má þvo í uppþvottavél, sem þýðir að aldrei
þarf að fjarlægja hnífabúnaðinn úr könnunni.
NETTÓÞYNGD: Vél: 5,6 kg. Kanna: 0,9
kg.
STAÐLAR: ISO 9001, NSF STANDARD 8,
EB Vélartilskipun 89/392 EEC.

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières