Hällde SB-4L Mode D'emploi page 26

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 12
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
HÄLLDE SB-4
(IS)
AÐVÖRUN
Við flutning á vélinni, fellið niður
lokið/lokfestinguna (3E/H) svo
að kannan (3I) lokist alveg og
takið um handfangið (1A) þegar
vélinni er lyft.
Varið ykkur á hvössum hnífum
(3J) í botni könnunnar.
Stingið aldrei höndum né neinum
verkfærum ofan í könnuna þegar
vélin er í gangi.
Verið alltaf viðbúin slettum úr
vélinni og gætið þess að
hættulegt getur verið að vinna
með allt of heita vökva o.þ.h.
Slökkvið á vélinni og takið hana
úr sambandi áður en vélarhúsið
(3K) er þrifið.
Vélarhúsið inniheldur rafhluta;
það má því ekki þvo í
uppþvottavél né dýfa í vatn.
Engan hluta vélarinnar má þvo
með háþrýstisprautu.
Aðeins löggiltum fagmönnum er
heimilt að gera við vélina og
opna vélarhúsið.
ÚTPÖKKUN
Gangið úr skugga um að allir hlutar fylgi
vélinni, að vélin sé í lagi og að ekkert hafi
skemmst í flutningi. Athugasemdir verða að
hafa borist seljanda innan átta daga.
UPPSETNING
Tengið vélina við rafstraum með réttri
uppgefinni spennu. Sjá liðinn
"TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR SB-4".
Gangið úr skugga um að hnífabúnaður (3J)
hætti að snúast innan 4 sekúndna eftir að
lokinu/lokfestingunni (3E/H) hefur verið lyft.
Setjið upp könnuna (3I) og lokið (sjá liðinn
"SAMSETNING"). Leggið niður lokið/
lokfestinguna. Gangsetjið vélina. Opnið
lokið/lokfestinguna hægt og gangið úr
skugga um að vélin stöðvist áður en opið
milli könnubrúnar og loks er orðið stærra en
30 mm.
Fjarlægið könnuna og lokið. Fellið
lokfestinguna niður í lægri smellistöðu sína.
Snúið hraðastilli (2D) í stöðu "2" og gangið
úr skugga um að vélin fari þá ekki í gang.
L
Ef misbrestur er á einhverju þessara þriggja
atriða ber að kalla til viðgerðarmann áður
en vélin er tekin í notkun.
OLÍUDREYPIR (3G)
Olíudreypirinn er ætlaður til að skammta
matarolíu eða dreypa henni hægt inn, t.d.
þegar majones er búin til meðan vélin er í
gangi.
Þegar þörf er á, festið olíudreypinn (3G)
með því að þrýsta honum fast inn í opið
ofan á lokinu (3F) og snúa honum réttsælis
eins langt og hægt er.
Lyftið lokfestingu (3H) í efri smellistöðu sína
og færið lokið (3E) inn í lokfestinguna
þannig að lokið hvíli í lokfestingunni.
Leggið könnuna (3I) á vélina þannig að
kannan hvíli þétt á undirstöðunum fjórum
(3M).
Fellið lokið/lokfestinguna alveg niður
þangað til það stöðvast.
Lyftið loki/lokfestingu (3E/H) upp í efri
smellistöðu sína.
Fjarlægið lokið af lokfestingunni.
Fjarlægið olíudreypinn af lokinu með því að
snúa olíudreypinum rangsælis þangað til
hann stöðvast og draga hann síðan upp.
Lyftið könnunni af vélinni.
HRAÐASTILLIR (2D)
Í stöðu "0" er slökkt á vélinni.
Í stöðu "1" vinnur vélin hægast, síðan eykst
hraðinn með hærri tölu og er hæstur í stöðu
"6".
Eftir að lokinu hefur verið lyft og
öryggisrofinn hefur stöðvað vélina verður
fyrst að snúa hraðastilli í stöðu "0" og síðan
í stöðu "1" eða hærra til að vélin fari aftur í
gang.
SNÖGG HRAÐASTILLING,
SPF er notað við stutta vinnslu á
hámarkshraða.
SAMSETNING
LOSUN
"SPF" (2C)
Jafnskjótt og ýtt er á SPF-hnappinn (2C) eykst
hraðinn beint frá því sem hraðastillirinn segir til
um upp í hámarkshraða.
SPF verkar ekki þegar hraðastillirinn (2D) er í
stöðu "0".
ALMENN RÁÐ FYRIR FLJÓTAN
OG GÓÐAN ÁRANGUR
Til að koma í veg fyrir að vökvi drjúpi á
bakhlið vélarinnar, lyftið aðeins lokinu/
lokfestingunni (3E/H) upp í efri smellistöðu
sína og ekki til fulls eins langt og unnt er.
Notið aðeins SB-4 til að blanda, þeyta,
hræra, hakka og stappa vökvaríkar blöndur
eins og sósur, súpur, jafninga, deig,
kryddlög, majones, ábætisrétti,
ávaxtadrykki, kokkteila, mjólkurhristing
o.s.frv.
Notið svo mikinn vökva að blandan sé
allan tímann hreyfanleg og léttfljótandi.
Hellið vökvanum í fyrst og bætið föstum
efnum (líka ísmolum) í þar á eftir.
Notið aldrei stærri ísmola en þá sem búnir
eru til í venjulegum ísvélum.
Skerið fyrst fasta hráefnið í um það bil
jafnstóra bita, ekki stærri en svo að vélin
geti auðveldlega unnið á þeim.
Látið fasta hráefnið í vélina í smáskömmtum
en ekki allt í einu.
Fyllið aldrei könnuna af meira magni en svo
að vélin vinni auðveldlega á því.
Sjáið til þess að magn í könnunni fari aldrei
yfir efstu merkingu á henni og munið að
magn hráefnisins eykst yfirleitt í vinnslunni.
Veljið hraðastillingu sem myndar loftsúlu í
könnunni miðri.
Notið opið á lokinu (3F) til að bæta við
efnum meðan vélin er í gangi.
Þegar majones er búin til, bætið þá olíunni
síðast við í smáskömmtum með
olíudreypinum (3G).
Til að koma í veg fyrir slettur, haldið hendinni
yfir opinu (3F) eða festið olíudreypinn
(3G).
HREINSUN
Hreinsið vélina alltaf strax eftir notkun.
Notið aldrei oddhvöss verkfæri né
háþrýstisprautu.
Hreinsið aldrei vélarhúsið (3K) með
uppþvottaefni með háu sýrustigi (pH) sem
oft er notað í uppþvottavélar.

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières