Notkunarleiðbeiningar; Isl - BAHAG Safety-box MINI Instructions De Fonctionnement

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 9
NOTKUNARLEIÐBEININGAR

ISL

VARÚÐ: Ekki geyma lykla í öryggishólfinu sjálfu.
1. ÖRYGGISHÓLFIÐ OPNAÐ Í FYRSTA SKIPTI
Þegar öryggishólfið er opnað í fyrsta skipti skal fjarlægja litlu hlífina í miðjunni „Z"
(sjá skýringarmynd 2) á milli húnsins og talnaborðsins, setja lykilinn í lásinn og snúa
honum rangsælis, á sama tíma skal snúa hurðarhúninum réttsælis og opna
hurðina.
2. RAFHLÖÐUR SETTAR Í
Öryggishólfið notar 4 x rafhlöður af stærðinni „AA" (1,5 V).
Rafhlöðuhólfið „Y" (sjá skýringarmynd 1) er staðsett aftan á hurðinni. Fjarlægðu
rafhlöðuhlífina og settu rafhlöðurnar í hólfið. Gakktu úr skugga um að rafhlöðurnar
séu með viðeigandi skaut.
Þegar búið er að setja rafhlöðurnar í skal loka rafhlöðuhólfinu.
3. LYKILORÐ BÚIÐ TIL
A.Taktu rafhlöðuhlífina af og ýttu á rauða hnappinn „X" innan í rafhlöðuhólfinu (sjá
skýringarmynd 1), slepptu honum síðan en þá heyrast tvö píp.
B.Þá skal ýta á 3 til 8 tölustafi, sem þú vilt nota sem lykilorð, og staðfesta það með
því að ýta á stafinn „B" innan 15 sekúndna. Annars þarf að endurtaka leikinn frá
byrjun.
C.Skrifaðu strax niður nýja lykilorðið og athugaðu hvort nýja lykilorðið hafi orðið til
eða ekki þegar hurð öryggishólfsins er opin.
4. ÖRYGGISHÓLFIÐ NOTAÐ
Til þess að opna öryggishólfið skaltu slá inn lykilorðið og staðfesta það með því að
ýta á stafinn „A". Þú heyrir píp og græna ljósið kviknar, síðan skaltu nota húninn til
opna hurðina innan 5 sekúndna.
Ef þú eða óboðinn aðili slær inn rangt lykilorð að þá opnast hólfið ekki. Ef rangt
lykilorð er notað 3 sinnum í röð þarf að bíða í 20 sekúndur áður en reynt er aftur. Ef
rangt lykilorð er slegið inn 3 sinnum þarftu að bíða í um það bil 5 mínútur áður en
þú reynir að fá aðgang að nýju.
5. VIÐVÖRUN FYRIR RAFHLÖÐUSKIPTI
Ef lítið er eftir af rafhlöðunum að þá færðu tafarlausa viðvörun með rauða ljósinu (til
vinstri). Til þess að prófa rafhlöðurnar þarftu bara að slá inn lykilorðið til þess að
opna hurðina. Ef lítið er eftir af rafhlöðunum að þá kviknar á rauða ljósinu. Ef ekkert
gerist að þá þýðir það að rafhlöðurnar séu í lagi.
21
6. SKIPT UM RAFHLÖÐUR
Öryggishólfið notar 4 x rafhlöður af stærðinni „AA" (1,5 V). Opnaðu öryggishólfið,
taktu af rafhlöðuhlífina „Y" (sjá skýringarmynd 1) aftan á hurðinni og skiptu um
gömlu PSC rafhlöðurnar 4. Þú þarft að endursetja lykilorðið með því að fylgja skrefi
þrjú hér að ofan. Ekki er mælt með að notaðar séu alkalín rafhlöður.
7. LEIÐBEININGAR TIL ÞESS AÐ OPNA ÖRYGGISHÓLFIÐ ÁN
LYKILORÐS
Þér til þæginda höfum við búið til handvirkt kerfi til að opna hólfið án lykilorðs. Ef þú
gleymir eða týnir lykilorðinu skaltu taka af litlu gúmmíhlífina í miðjunni „Z" (sjá
skýringarmynd 2) á milli húnsins og talnaborðsins, setja lykilinn í skráargatið og
snúa honum rangsælis og snúa síðan húninum réttsælis. Með því að gera þetta er
ávallt hægt að opna öryggishólfið með handvirkum hætti.
8. ÖRYGGISHÓLFINU KOMIÐ FYRIR
Til þess að draga úr áhættu þess að öryggishólfinu sé stolið er hægt að festa það
við gólf, vegg eða í skáp. Þér til þæginda eru göt (8 mm þvermál) bæði neðan á og
aftan á hólfinu; því er hægt að festa það með meðfylgjandi þanboltum.
VARÚÐ:
Öryggishólfið ætti að vera lárétt þegar því er komið fyrir.
Skýringarmynd 1
Vídd: 17 x 23 x 17 cm
Þyngd: 2.7 kg
BAHAG AG
Gutenbergstr. 21
68167 Mannheim
Skýringarmynd 2
22

Publicité

Table des Matières
loading

Produits Connexes pour BAHAG Safety-box MINI

Ce manuel est également adapté pour:

23519628

Table des Matières