Thule Spring Mode D'emploi page 26

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 6
Til hamingju
Og takk fyrir að velja Thule Spring! Þú getur reitt þig á að við höfum lagt alla okkar
vinnu, kunnáttu og ástríðu í að hanna flotta, sveigjanlega og örugga barnakerru.
Við höfum einnig þróað mikið úrval aukahluta sem þú getur notað til að gera
gönguferðirnar enn þægilegri og ánægjulegri. Allt er þetta gert svo þú og barnið
þitt getið farið þangað sem hugurinn leiðir ykkur.
Lestu þessar leiðbeiningar vandlega áður en þú notar Thule Spring og geymdu þær
til síðari nota.
Leggjum í hann!
/Thule
IS
VIÐVÖRUN:
i1. MIKILVÆGT – LESIÐ
VANDLEGA OG GEYMIÐ
TIL SÍÐARI NOTA. Öryggi
barnsins kann að vera stefnt
í hættu ef ekki er farið eftir
þessum leiðbeiningum.
i2. Lesið öryggisleiðbeiningarnar
fyrir Thule-kerrur fyrir notkun
og geymið þær til síðari nota.
Viðhald
Mikilvægt er að þrífa og halda Thule Spring-
kerrunni við til að tryggja að ástand hennar
haldist sem best.
Skoðið kerruna og aukahluti reglulega til að
leita eftir merkjum um skemmdir eða slit:
• Athugið hvort það séu dældir eða
sprungur í málmhlutum. Ekki nota kerruna
ef málmhlutir eru dældaðir eða skemmdir.
• Athugið reglulega hvort áklæði sé rifið,
slitið eða skemmt.
Hægt er að handþvo áklæðin í Thule Spring.
• Blettahreinsið eða handþvoið gætilega
með mildri sápu og volgu vatni. Ekki
nota hreinsiefni.
• Skolið vandlega með volgu vatni.
• Hengið til þerris.
• Ekki þvo í þvottavél! Ekki nota bleikiefni.
Ekki strauja. Ekki setja í þurrhreinsun.
• Hægt er að fjarlægja og þvo áklæði
á sæti og skyggni ef þörf krefur.
26
Hægt er að þvo grindina og hjólin með
rökum klút. Þerrið með þurrum klút.
Ef ískrar í hjólum má smyrja þau með örlitlu
kísilsmurefni. EKKI nota olíu eða feiti, þar
sem slík efni draga í sig óhreinindi sem
hamla hreyfingu.
Geymið kerruna og varahluti á þurrum stað
þar sem sól skín ekki. Kerran verður að vera
þurr áður en hún er sett í geymslu til að
koma í veg fyrir myglu- og bakteríumyndun.
Ábyrgð og varahlutir
Thule hefur það að markmiði að framleiða
gæðavörur sem eru þaulprófaðar og lausar
við framleiðslu- og efnisgalla. Frekari
upplýsingar um ábyrgð og framlengda
ábyrgð á Thule Spring má finna á Thule.com.
Aðeins skal nota varahluti sem
framleiðandinn/söluaðilinn hefur framleitt
eða mælt með.
Varahlutir eru fáanlegir hjá næsta söluaðila
Thule. Þú finnur næstu Thule-verslun í
leitarvélinni á Thule.com.
Fyrirspurnir
Við fögnum öllum athugasemdum og
spurningum um vörurnar okkar sem
auðvelda okkur að tryggja sem besta
upplifun notenda. Hafið samband við
söluaðila eða notendaþjónustu okkar á
support.thule.com.
501-8620-04

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières