BESAFE iZi Turn B Mode D'emploi page 83

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 21
170
Þakka þér fyrir að velja BeSafe iZi Turn B i-Size
!
Það er mikilvægt að þú lesir þessa notendahandbók ÁÐUR en þú festir
stólinn. Röng uppsetning getur stofnað barni þínu í hættu.
! Mikilvægar upplýsingar
Það er EKKI LEYFILEGT að setja stólinn í framsæti MEÐ
VIRKUM ÖRYGGISPÚÐA.
Þennan bílstól er bara hægt að nota í bíl sem er með ISOfix
festingar, í samræmi við UN/ECE reglugerð nr. 14 eða aðra jafngilda
staðla.
Lesið handbók bílsins til að vita hvar stóllinn á að vera í bílnum.
Lesið bílalistann til að sjá hvort þín bílategund sé vottuð fyrir þetta sæti.
Hægt er að fá nýjustu útgáfu af bílalistanum á BeSafe vefsíðunni www.
besafe.com. Ef bíllinn þinn er ekki á bílalistanum skaltu hafa samband við
BeSafe til að fá nánari upplýsingar.
iZi Turn B i-Size má nota bakvísandi fyrir börn frá 40 til 105 cm hæð að
hámarksþyngd 18 kg og framvísandi fyrir börn frá 88 til 105 cm hæð
einnig að hámarksþyngd 18 kg.
ATHUGIÐ: Notið ekki framvísandi fyrr en barnið hefur náð 15 mánaða
aldri.
Þegar ekið er með barn sitjandi í stólnum verður stólinn ávallt að vera
(bakvísandi) frá akstursstefnu bílsins. Aldrei má aka með stólnum snúið
til hliðar þegar barn situr í stólnum. Mælt er með því að aka ekki með
stólnum snúið til hliðar þegar hann er tómur.
BeSafe mælir með notkun bakvísandi barnabílstóla eins lengi og
mögulegt er.
Öryggisbeltin verða alltaf að vera læst þegar barnið er í stólnum.
Strekkja verður á öryggisbeltunum til að taka af slaka og gæta þess að
þau séu ekki snúin.
Axlarpúðarnir eru með seglum sem geta haft áhrif á rafeindabúnað eins
og gangráð.
Verjið barnið fyrir sól.
Ávallt verður að nota gólfstuðninginn. Gakktu úr skugga um að
gólfstuðningurinn sé niðri að fullu þar til hann snertir bílgólfið fyrir
framan stólinn og að bílstóllinn sé láréttur í bílnum með hallamálið í
miðjunni. Vísarnir fyrir gólfstuðninginn ættu alltaf að vera grænir.
Barnainnleggið til að nota upp að 87 cm hæð má eingöngu nota þegar
bílstóllinn snýr aftur og er í neðstu afturhallandi stöðu.
Fjarlægið barnapúðann þegar barnið er stærra en 60 cm eða eldra en 4
mánaða.
Taktu barnainnleggið úr þegar barnið er orðið hærra en 87 cm.
Eftir bílsslys verður að skipta um stól þó svo að hann virðist óskemmdur
því við annað slys er ekki víst að stóllinn verndi barn þitt eins og hann á
að gera.
Gætið þess að setja ekki farangur ofan á stólinn, skella hurðum á hann
eða gera nokkuð annað sem getur skemmt hann.
Gættu þess að strekkja mjög vel á beislinu, þannig að ekki sé lengur
hægt að mynda brot í beltunum. Þegar strekkt er á beislinu skal ganga úr
skugga um að barnið liggi vel upp að bakinu.
EKKI reyna að taka stólinn í sundur, breyta eða bæta hlutum við hann.
Ábyrgðin gildir ekki ef annað en upprunalegir hlutir eru notaðir eða
einhver aukabúnaður.
Aldrei skilja barnið eftir eftirlitslaust í stólnum.
Gangið úr skugga um að farþegar viti hvernig losa á barnið úr stólnum í
neyðartilfellum.
Festið töskur og aðra lausamuni vel því laus farangur getur slasað bæði
börn og fullorðna illa.
Aldrei nota bílstól án áklæðis. Það er til öryggis og má aðeins endurnýja
með upprunalegu BeSafe áklæði.
Ekki nota sterkar hreinsivörur; þær geta dregið úr styrk stólsins.
BeSafe mælir með að notaðir barnabílstólar séu hvorki keyptir né seldir.
GEYMDU þessa handbók til síðari nota.
EKKI nota stólinn lengur en 7 ár því efnið í honum breytist með aldrinum.
EKKI nota stólinn heimafyrir. Hann er ekki hannaður til heimabrúks
heldur aðeins til nota í bíl.
Þegar stólinn er settur í bílinn skal gæta vel að öllum stöðum þar
sem hann gæti snert innréttingu bílsins. Við mælum með að (BeSafe)
hlífðarklæði sé notað á þessum stöðum til að koma í veg fyrir skemmdir
af núningi. Þetta á sérstaklega við um leður- og viðarklædda fleti.
Ef þú ert í vafa, hafðu þá samband við starfsmenn barnabílstóla hjá VÍS.
171

Publicité

Table des Matières
loading

Ce manuel est également adapté pour:

Izi turn

Table des Matières