Lenovo Smart Tab M8 Guide D'utilisateur page 176

Masquer les pouces Voir aussi pour Smart Tab M8:
Table des Matières

Publicité

Íslenska
Lestu þennan leiðarvísi vandlega áður en þú byrjar að nota tækið.
Allar upplýsingar merktar með * í þessum leiðarvísi eiga aðeins við um
WLAN + LTE-gerðina.
Lesið fyrst – upplýsingar um reglur
Tæki sem búin eru þráðlausum fjarskiptabúnaði eru í samræmi við staðla
um útvarpstíðni og öryggi í hverju landi eða svæði þar sem þau hafa verið
samþykkt fyrir þráðlausa notkun. Ef varan inniheldur fjarskiptamótald uppfyllir
hún jafnframt kröfur um tengingu við símkerfið í þínu landi.
Gætið þess að lesa reglutilkynningu fyrir þitt land eða svæði áður en
þú notar þráðlausan búnað sem er í tækinu. Til að sækja PDF-útgáfu af
reglutilkynningu skaltu fara á https://support.lenovo.com.
Fá aðstoð
Til að fá aðstoð vegna netþjónustu og gjaldtöku skaltu hafa samband við
símafyrirtækið þitt. Til að læra að nota tækið og skoða tæknilýsingu þess
skaltu fara á https://support.lenovo.com.
Notkunarleiðbeiningar sóttar
Notkunarleiðbeiningar þínar innihalda nákvæmar upplýsingar um tækið þitt. Til
að sækja fylgigögnin fyrir tækið þitt skaltu fara á https://support.lenovo.com
og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
Lagalegir fyrirvarar
Lenovo og kennimerki Lenovo eru vörumerki Lenovo á Íslandi, öðrum löndum
eða hvort tveggja.
Nöfn annarra fyrirtækja, vöru eða þjónustu geta verið vörumerki eða
þjónustumerki annarra aðila.
Framleitt með leyfi frá Dolby Laboratories. Dolby, Dolby Atmos, og tvöfalda
D-táknið eru vörumerki Dolby Laboratories.
TILKYNNING VARÐANDI TAKMÖRKUN OG TAKMARKAÐAN RÉTT: Ef gögn
eða hugbúnaður er afhentur samkvæmt samningi um stjórnun almennrar
þjónustu („GSA") er notkun, fjölföldun eða birting háð takmörkunum sem
fram koma í samningi nr. GS-35F-05925.
174

Publicité

Table des Matières
loading

Ce manuel est également adapté pour:

Tb-8505fsTb-8505xs

Table des Matières