Hällde RG-200 Mode D'emploi page 26

Masquer les pouces Voir aussi pour RG-200:
Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 12
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
HÄLLDE RG-200
(IS)
AÐVÖRUN!
Varist að skera ykkur á beittum
hnífum og lausum vélarhlutum.
Notið ávallt stautinn (1:G) við
skurð gegnum mötunarpípuna
(1:H) og stingið aldrei fingrunum
ofan í pípuna.
Aðeins löggiltum fagmönnum er
heimilt að annast viðgerðir á
vélinni og opna vélarhúsið.
Hnífskrúfuna (1:J) á að losa
réttsælis með lyklinum (1:K).
ÚTPÖKKUN
Gangið úr skugga um að jafnvel smæstu
hlutar fylgi vélinni, að hún sé í lagi og
ekkert hafi skemmst í flutningi. Kvartanir
verða að berast umboðsmanni vélarinnar
innan átta daga.
TENGING
Tengið vélina við rafstraum með réttri
uppgefinni spennu.
Vélinni skal búinn staður á bekk eða borði
sem er u.þ.b. 650 mm hátt.
Festið verkfærahengi (4:A) fyrir
skurðarskífurnar (3) á vegg nálægt vélinni til
öryggis og hagræðis.
Gangið úr skugga um eftirfarandi tvö atriði
án þess að skurðarskífur eða
útmötunarskífa (1:D) séu í vélinni.
Að vélin stöðvist þegar þrýstiplötunni (1:A)
er lyft og fari aftur í gang þegar plötunni er
ýtt niður.
Að ekki sé unnt að gangsetja vélina ef
mataranum/lokinu er lyft og þrýstiplötunni
ýtt niður.
Ef misbrestur er á þessu, kallið þá til
viðgerðarmann áður en vélin er tekin í
notkun.
RÉTT VAL ÁV SKURÐARSKÍFUM
Við teningsskurð verður teningsrist (3:G) að
vera jafnstór eða stærri en skurðarskífan
(3:A eða D).
VENJULEG SKURÐARSKÍFA (3:A): Sker fast
hráefni. Sker í teninga ef hún er notuð með
teningsrist af gerð 1 (3:G1).
TENINGSSKURÐARSKÍFA (3:B). Sker í
teninga, notuð með teningsrist af gerð 1
(3:G1) frá 12.5x12.5 mm og upp úr.
GÁRUSKURÐARSKÍFA (3:C): Fyrir rifflaðar
sneiðar.
FÍNSKURÐARSKÍFA MEÐ 2 HNÍFUM
(3:D2): Sker fast og mjúkt hráefni. Strimlar
kál.
FÍNSKURÐARSKÍFA MEÐ 1 HNÍF (3:D1):
Sker fast, mjúkt, safaríkt og viðkvæmt
hráefni. Strimlar salatsblöð. 4 mm hakkar
lauk, notuð með teningsrist af gerð 1
(3:G1) 10x10 mm og stærri. 4, 6 og 10 mm
sker í teninga, notuð með teningsrist af gerð
1. 14 mm sker í teninga, notuð með
teningsrist af gerð 2 (3:G2).
LANGSKURÐARSKÍFA (3:F): Strimlar, sker
bognar franskar kartöflur.
TENINGSRIST AF GERÐ 1 (3:G1): Sker í
teninga, notuð með viðeigandi skurðarskífu.
Ónothæf með 14 mm fínskurðarskífu! Sjá um
teningsrist af gerð 2 hér á eftir.
TENINGSRIST AF GERÐ 2 (3:G2): Sker í
teninga, notuð með 14 mm fínskurðarskífu.
RIST FYRIR FRANSKAR KARTÖFLUR (3:H):
Sker beinar kartöflulengjur, notuð með 10
mm fínskurðarskífu.
RIFSKURÐARSKÍFA (3:K): Rífur gulrætur,
hvítkál, hnetur, ost, þurrt brauð.
FÍNRIFSKÍFA (3:L): Fínrífur hráar kartöflur,
harðan/þurran ost.
ÍSETNING Á SKURÐARSKÍFUM
Lyftið upp þrýstiplötunni (1:A) og snúið
henni til vinstri á arminum.
Snúið láshringnum (1:B) rangsælis og lyftið
mataranum/lokinu (1:C).
Rennið útmötunarskífunni (1:D) upp á
öxulinn og snúið/þrýstið henni niður í
festingu sína.
Ef skera á í teninga eða hakka lauk, leggið
þá fyrst viðeigandi teningsrist í vélina og
snúið teningsristinni réttsælis þangað til hún
stöðvast.
Veljið síðan viðeigandi skífu: skurðarskífu
eða fínskurðarskífu fyrir teningaskurð og
fínskurðarskífu fyrir laukhökkun. Rennið
skurðarskífunni upp á öxulinn og snúið
henni þannig að hún falli í festingu sína.
þegar skera skal, strimla eða rífa hráefnið,
rennið þá aðeins viðeigandi skurðarskífu
upp á öxulinn og snúið henni þannig að
hún falli í festingu sína.
Skrúfið hnífskrúfuna (1:J) fasta rangsælis á
miðhólk skurðarskífunnar.
Fellið niður matarann/lokið og snúið
láshringnum réttsælis í læsta stöðu.
LOSUN Á SKURÐARSKÍFUM
Lyftið þrýstiplötunni (1:A) upp og snúið
henni til vinstri.
Snúið láshringnum (1:B) rangsælis og lyftið
upp mataranum/lokinu.
Skrúfið hnífskrúfuna (1:J) af réttsælis með
lyklinum (1:K).
Fjarlægið skurðarskífuna/skífurnar ásamt
útmötunarskífunni (1:D).
ÞANNIG ER MATARINN NOTAÐUR
Stóra mötunarhólfið er einkum notað þegar
mat eins og kartöflum, lauk o.s.frv. er
skóflað ofan í vélina (2:A) og við skurð á
fyrirferðarmeira hráefni eins og káli.
Mötunarhólfið er ennfremur notað þegar
skera á hráefnið á sérstakan hátt, t.d.
tómata og sítrónur. Leggið hráefnið /
raðið því skv. mynd (2:B).
Mötunarpípan er notuð við skurð ílangs
hráefnis eins og gúrku (2:C).
HREINGERNING
Slökkvið fyrst á vélinni og takið hana úr
sambandi.
Hreinsið vélina gaumgæfilega Þegar eftir
notkun.
Ef skurðaráhöldin eru merkt "diwash", þá
lesið sérstöku "diwash"-leiðbeiningarnar og
fylgið þeim í hvívetna.
Þvoið aldrei hluti úr léttmálmi í
uppþvottavél nema þá sem merktir eru
"diwash".
Ef Þið hafið notað teningsrist (3:G), látið
hana sitja eftir í vélinni og ýtið fyrst
teningunum sem eftir sitja út með burstanum
(4:B).
Fjarlægið lausa hluta og Þvoið Þá og
Þurrkið vel.
Þurrkið af vélinni með rakri grisju.
Skiljið aldrei hnífa skurðarskífnanna eftir
blauta Þegar Þeir eru ekki í notkun.
Geymið alltaf skurðarskífurnar (3) á
verkfærahenginu (4:A) á veggnum.
Notið aldrei oddhvöss verkfæri né
háÞrýstidælu.
Sprautið aldrei vatni á hliðar vélarinnar.

Publicité

Table des Matières
loading

Table des Matières