Télécharger Imprimer la page

Hällde RG-50 Mode D'emploi page 27

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 12
"I" og gangið síðan úr skugga um að vélin
stöðvist þegar matarahandfangi (A3) er lyft og
fari aftur í gang þegar handfangið er fellt niður.
Snúið hraðastilli í stöðu "I", lyftið upp
matarahandfangi og gangið úr skugga um að
öxullinn (A14) hætti að snúast innan tveggja
sekúndna.
Takið vélina úr sambandi eða lokið f yrir
straumrofann og gangið síðan úr skugga um að
raflínan sé heil og ósprungin.
Ef raflínan er ekki heil eða það eru sprungur í
henni eða ef misbrestur kemur í ljós í
fyrrnefndum prófunum verður að kalla til
viðgerðarmann áður en vélin er tekin í notkun.
Gangið úr skugga um að gúmmíundirstöður
vélarhússins séu vel festar.
Gangið úr skugga um að hnífar og rifjárn séu
heil og bíti vel.
Bilanaleit.
Til að minnka hættu á alvarlegum bilunum hefur
RG-50 sjálfvirkan straumrofsbúnað sem slekkur
á vélinni ef vélarhitinn verður of hár. Þessi
búnaður felur í sér að aftur má gangsetja vélina
þegar hitinn er kominn í samt lag, sem tekur
yfirleitt frá 10 upp í 30 mínútur.
BILUN: Vélin fer ekki í gang eða hættir vinnslu
og ekki er hægt að gangsetja hana aftur.
VIÐBRÖGÐ: Gangið úr skugga um að vélin sé
tengd eða að straumrofinn sé í stöðu "I".
Gangið úr skugga um að bræðivör í töfluskáp
séu heil og ampertala þeirra sé rétt. Gangið úr
skugga um að matarinn (A5) sér rétt settur á
og að matarahandfang (A3) sé fellt niður. Bíðið
upp undir 30 mínútur og reynið þá að
gangsetja vélina á ný. Kallið til viðgerðarmann.
BILUN: Léleg vinnuafköst eða vinnuárangur við
notkun matarans (A5). VIÐBRÖGÐ: Veljið rétt
skurðarverkfæri (A6-A12). Notið alltaf
frárásarskífuna (A13). Gangið úr skugga um að
hnífar og rifjárn séu heil og bíti vel. Þrýstið
hráefninu lausara niður.
BILUN: Ekki er hægt að losa skurðarverkfæri við
notkun matarans (A5). VIÐBRÖGÐ: Notið alltaf
frárásarskífu (A13). Setjið upp þykkan skinnhan-
ska eða annað sem hnífar skurðarverkfæra
skera ekki sundur, snúið skurðarverkfærunum
rangsælis og losið þau.
Tæknilegar upplýsingar: Hällde RG-50
MISMUNANDI VINNSLA: Sneiðir, strimlar og/
eða rífur ávexti, grænmeti, þurrt brauð, ost,
hnetur, sveppi.
NOTENDUR: Veitingahús, verslanaeldhús,
sérfæðueldhús, dagheimili, þjónustuheimili,
veislueldhús o.s.frv. sem útbúa mat fyrir frá 10
til 80 manns á dag.
VINNSLUGETA OG RÚMTAK: Meðhöndlar allt
upp í 2 kg á mínútu allt eftir vali á
skurðarverkfærum og hráefni. Rúmtak matar-
ans: 0,9 lítrar. Þvermál matarapípu: 53 mm.
VÉLARHÚS: Vél: 250W. 100-120 V, 1-fasa, 50-
60 Hz, 220-240 V, 1-fasa, 50/60 Hz.
Hitastýrð hreyfilvörn. Hraðaskipting:
tannhjólsreim. Öryggiskerfi: tveir öryggisrofar.
Varnarflokkur: IP34. Veggtenging: jarðtengd, 1-
fasa, 10A. Bræðivör í töfluskáp á staðnum:
10A, treg. Hljóðstyrkur: LpA (EN31201): 76
dBA. Segulsvið: minna en 15 mikrotesla.
HRAÐI: Einn hraði, um 400 snún/mín.
SKURÐARVERKFÆRI: Þvermál
skurðarverkfæra: 185 mm.
EFNI: Vélarhús úr áli. Matarahaus úr
pólýkarbónati. Frárásarskífa úr acetali.
Skurðarverkfæri úr sterku acetali, pólýsúlfóni
eða áli. Hnífar skurðarverkfæra úr hnífastáli af
hæsta gæðaflokki.
NETTÓÞYNGD: Vélarhús: 12 kg. Matarahaus:
1 kg. Skurðarskífur að meðaltali um 0,4 kg.
STAÐL AR: EU Vélartilskipun 89/392/EB og
EMC-tilskipun 89/336/EB

Publicité

loading