Télécharger Imprimer la page

Lenovo Tab E7 Mode D'emploi page 160

Masquer les pouces Voir aussi pour Tab E7:

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 28
Mikilvægar upplýsingar varðandi öryggi og
meðhöndlun
Viðvörun vegna plastpoka
Hætta: Plastpokar geta verið hættulegir. Haltu plastpokum fjarri smábörnum og
yngri börnum til að komast hjá hættu á köfnun.
Athugasemd vegna innbyggðrar hleðslurafhlöðu
Hætta: Ekki reyna að skipta um innbyggðu litíum-ion hleðslurafhlöðuna. Hætta
er á sprengingu ef sett er í ný rafhlaða af rangri tegund. Hafið samband við
hjálparmiðstöð Lenovo til að fá varahluti frá verksmiðju.
Viðvörun vegna mikils hljóðstyrks
Viðvörun: Að vera í miklum hávaða í lengri tíma, frá hvaða hljóðgjafa sem er, kann
að skaða heyrnina. Því hærra sem hljóðið er, þeim mun skemmri tími líður þar til það
fer að skaða heyrnina. Til að vernda heyrn þína:
• Stilltu í hóf þeim tíma sem þú notar höfuðtól eða heyrnartól við háan hljóðstyrk.
• Forðastu að hækka hljóðstyrkinn til að loka á hávaða úr umhverfinu.
• Ef þú heyrir ekki hvað fólkið næst þér segir ættirðu að minnka
hljóðstyrkinn.
Ef þú finnur fyrir óþægindum í eyrunum, þar með talið þrýstingi, stíflu í eyrunum eða
suði, eða átt erfitt með að heyra tal, ættir þú að hætta að hlusta á tækið gegnum
heyrnartólin og láta mæla heyrnina.
Til að koma í veg fyrir hugsanlegan heyrnarskaða skal ekki hlusta með háum
hljóðstyrk í lengri tíma.
Öryggisleiðbeiningar fyrir foreldra og fullorðna umsjónarmenn
Fartækið er ekki leikfang. Ekki er mælt með því að börn undir 3 ára aldri leiki sér
með tækið. Eins og gildir um öll rafmagnstæki skal sýna aðgát þegar rafmagnstækið
er notað og meðhöndlað til að draga úr hættu á raflosti. Ef foreldrar leyfa börnum
sem eru 3 ára eða eldri að nota tækið skal vara barnið við mögulegri hættu sem
fylgir notkun og meðhöndlun fartækisins.
Foreldrar ættu að athuga reglulega hvort skemmdir séu á fartækinu (þar á meðal
hleðslutæki og smáum hlutum þess, eins og á við). Skoða skal fartækið reglulega til
að ganga úr skugga um að það virki sem skyldi og öruggt sé fyrir börn að nota það.
158

Publicité

loading

Ce manuel est également adapté pour:

Tb-7104fTb-7104i