Wood's Tryggir Hreint Og Heilbrigt Inniloft - Wood's Airmaster WOZ100 Guide D'instructions

Table des Matières

Publicité

Les langues disponibles
  • FR

Les langues disponibles

  • FRANÇAIS, page 47
Notendahandbók
IS
ÞAKKA ÞÉR FYRIR AÐ VELJA WOOD'S AIRMASTER –
ÖFLUGT SÆNSKT GÆÐA ÓSONTÆKI
Wood's Airmaster er ósontæki til lofthreinsunar
smíðað í Svíþjóð úr ryðfríum hlutum og stenst erfiðar
rekstraraðstæður árum saman. Ósontækið eyðir bæði
hratt og örugglega sýklum, veirum og óþef af t.d. raka,
myglu, sorpi, skólpi, reyk og gæludýrum.
Wood's Airmaster WOZ100 tækin henta vel til að
fjarlægja óþef af heimili, skrifstofu, bíl, bát, hjólhýsi og
bað- og þvottaherbergjum. Alls staðar þar sem þú vilt
hafa heilbrigt og ferskt umhverfi.
Ósonið þrengir sér líka inn í tauefni og yfirborð
innréttinga og veggfóðurs.
Wood's Airmaster WOZ3000/6000 hentar vel til
stórhreingerninga eftir bruna- og vatnsskemmdir.

WOOD'S TRYGGIR HREINT OG HEILBRIGT INNILOFT

Wood's hefur í rúm 60 ár framleitt áreiðanlegar
hágæðavörur með mikilli afkastagetu og minnstu
mögulegu orkunotkun. Tækin frá Wood´s eru nú á
boðstólum í um 20 löndum en höfuðstöðvar fyrirtækisins
eru í Alingsås.
MEÐLIMUR Í EUROPEAN OZONE TRADE
ASSOCIATION (EUOTA) OG ÞÁTTAKANDI Í OZONE-
DOSSIER EUOTA UM VIRK SÆFIEFNI.
Þess vegna er Wood's Airmaster öruggur búnaður til
framtíðar litið og búinn undir síðari löggjöf og regluset-
ningu um sæfiefni.
64
HVERNIG VIRKAR ÓSONEYÐANDI TÆKI?
Óson er svokallað virkt súrefni og myndast með aðkomu
raforku inni í ósontækinu. Óson virkar með því að oxa
lífræn efni og fjarlægir þannig á skilvirkan hátt framandi
lyktarefni en einnig sýkla og veirur. Í langflestum tilvikum
myndast aðeins koltvísýringur og vatn.
Í útilofti er styrkur ósons á bilinu frá 0,001 - 0,040 hlutar
á hverja milljón (ppm). Vinnuverndareftirlitið hefur sett
mörkin við 0,1 ppm óson við 8 klukkustunda váhrif við
vinnu. Við styrk á bilinu 0,015 - 0,020 ppm skynjar fólk
ósonið sem hreint ferskt loft (eins og eftir þrumuveður).
Við 0,050 ppm fer ósonlyktin að vera óþægileg og við 0,1
ppm fer fólk að finna fyrir ertingu í augum og hálsi.
MIKILVÆGT!
Finndu og bregstu við því sem veldur óþefnum
áður en loftið er hreinsað, annars kemur hann
bara aftur.
Það er hættulegt að anda að sér ósoni og því
skal nota ósontækið með varkárni.
Wood's Airmaster WOZ100
Má ekki nota í lengri tíma þar sem fólk eða
dýr dvelja. Skammvinn útsetning (minna en 5
mínútur) er skaðlaus.
Wood's Airmaster WOZ3000/6000
Ekki skal farið inn í rýmið á meðan loftið er
hreinsað.
Lestu notendahandbókina vandlega fyrir notkun.

Publicité

Table des Matières
loading

Ce manuel est également adapté pour:

Airmaster woz3000Airmaster woz6000

Table des Matières