ÞRIF OG VIÐHALD
1.
Áður en viftan er þjónustuð og eftir hverja notkun skal slökkva á viftunni og taka hana úr sambandi.
2.
Aldrei má dýfa tækinu í vatn (hætta á skammhlaupi). Til að þrífa tækið skal aðeins þurrka af því með rökum
klút og þurrka það varlega. Taktu tækið alltaf úr sambandi fyrst.
3.
Passaðu upp á að óhóflegt magn af ryki safnist ekki saman í loftinntakinu og loftútstreymisgrindinni, og
þrífðu öðru hvoru með því að nota þurran bursta eða ryksugu.
TÆKNILEG GÖGN
Inntak breytistykkis: 100-240V~ 50/60Hz, 1,5A hám.
Úttak breytistykkis: 24V DC, 1,5A, 36W
Vifta: 24V DC, 35W, 1,5A
Endurvinnsla
Þessi marking gefur til kynna að ekki skal farga þessari vöru með öðru heimilissorpi í samræmi við
2012/19/EU. Til að koma í veg fyrir mögulegan skaða á umhverfinu eða heilsu manna vegna
óheimillar förgunar, skal endurvinna vöruna á ábyrgan hátt til að stuðla að sjálfbærri endurnýtingu
á efnum. Við skil á tækinu skal notast við viðeigandi skilakerfi eða hafa samband við þann söluaðila
sem varan var keypt af. Söluaðili getur einnig tekið við vörunni fyrir umhverfisvæna endurvinnslu.
Notuðum rafhlöðum skal ekki fargað með hefðbundu heimilissorpi, þar sem þær gætu innihaldið
eiturefni og þungmálma sem geta haft skaðleg áhrif á umhverfið og heilsu manna. Farðu með tómar rafhlöður
til viðeigandi endurvinnslustöðvar.
- 82 -